Æfingar eru hafnar á Bubbasöngleiknum Níu líf í leikstjórn Ólafs Egils Egilssonar og hefjast sýningar á Stóra sviði Borgarleikhússins 10. apríl.
Æfingar eru hafnar á Bubbasöngleiknum Níu líf í leikstjórn Ólafs Egils Egilssonar og hefjast sýningar á Stóra sviði Borgarleikhússins 10. apríl. Uppfærslan sló í gegn þegar hún var frumsýnd í mars 2020 og gaf leiklistargagnrýnandi Morgunblaðsins sýningunni fullt hús. Einungis náðist að sýna þrjár sýningar á sínum tíma áður en allt sýningarhald stöðvaðist vegna heimsfaraldursins. Samkvæmt upplýsingum frá leikhúsinu hafa nú þegar 16.000 leikhúsgestir tryggt sér miða á sýninguna sem mun ganga næstu mánuði.