Armie Hammer
Armie Hammer
Bandaríski leikarinn Armie Hammer er grunaður um nauðgun og er málið til rannsóknar hjá lögreglunni í Los Angeles. Var lögreglu tilkynnt um hið meinta brot 3.
Bandaríski leikarinn Armie Hammer er grunaður um nauðgun og er málið til rannsóknar hjá lögreglunni í Los Angeles. Var lögreglu tilkynnt um hið meinta brot 3. febrúar en konan sem kærði Hammer, kölluð Effie, var tvítug þegar leikarinn á að hafa nauðgað henni, árið 2017. Hammer var þá kvæntur og sagði Effie á blaðamannafjarfundi að Hammer hefði nauðgað henni í fjórar klukkustundir og að hún hefði óttast að hann myndi drepa hana.