Lautarferð Skammt frá glóandi hrauni settist fólk niður og fylgdist með.
Lautarferð Skammt frá glóandi hrauni settist fólk niður og fylgdist með. — Ljósmynd/Jón Kjartan Björnsson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Á vefmyndavélum mátti seint í gærkvöldi sjá að mikill kraftur er enn í eldgosinu í Geldingadölum við Fagradalsfjall. Glóandi hraun bullsýður í eldgígnum og straumar þess renna fram á nokkrum stöðum.
Á vefmyndavélum mátti seint í gærkvöldi sjá að mikill kraftur er enn í eldgosinu í Geldingadölum við Fagradalsfjall. Glóandi hraun bullsýður í eldgígnum og straumar þess renna fram á nokkrum stöðum. Litbrigði jarðarinnar í kvöldmyrkrinu voru stórkostleg eins og eldgos jafnan eru. Margir hafa lagt leið sína að eldstöðinni nú um helgina. Ljósmyndarar Morgunblaðsins voru fljótir á vettvang en einnig bárust blaðinu fjölmargar myndir frá fólki sem fór að gosstöðvunum um helgina.