Hættulegar aðstæður. V-NS
Norður | |
♠ÁK9 | |
♥52 | |
♦1097543 | |
♣53 |
Vestur | Austur |
♠DG1084 | ♠653 |
♥109863 | ♥D |
♦8 | ♦ÁKDG2 |
♣Á8 | ♣DG72 |
Suður | |
♠72 | |
♥ÁKG74 | |
♦6 | |
♣K10964 |
Suður spilar 3♣ dobluð.
Eitt er að nota öflugar aðferðir, annað að beita þeim af skynsemi. Kraftmikill bíll tryggir ekki gott ökulag. Í Mini-Alt-viðureign Jóns Baldurssonar og pólskrar sveitar opnaði vestur á báðum borðum á 1♦ í þriðju hendi. Suður átti næsta leik með fallega tvílita hönd í hjarta og laufi.
Sverrir Ármannsson sagði hæversklega 1♥ og sagnir koðnuðu átakalaust niður í 2♠: Vestur yfirfærði í spaða með dobli, austur sagði 1♠, Sverrir 2♣ og vestur 2♠. Allir pass (170).
Hinum megin kom sætisfélagi Sverris inn á 2G í merkingunni „lægstu litir“. Nokkuð glannalegt í ljósi stöðunnar. Jón doblaði til að sýna spaðalit og Einar sá svo um að dobla 3♣ til sektar. Tveir dán, að mati GIB, en sagnhafi hitti illa í laufið og endaði þrjá niður (800).
Þótt gott sé að geta sagt frá 10 spilum í einni sögn verður að taka tillit til aðstæðna.