Reynslumikill Toni Kroos á að baki 101 landsleik fyrir Þýskaland.
Reynslumikill Toni Kroos á að baki 101 landsleik fyrir Þýskaland. — @DFB_Team_EN
Toni Kroos, miðjumaður Real Madrid og þýska landsliðsins í knattspyrnu, hefur dregið sig úr landsliðshópi Þýskalands sem mætir meðal annars Íslandi í undankeppni HM hinn 25. mars í Duisburg.

Toni Kroos, miðjumaður Real Madrid og þýska landsliðsins í knattspyrnu, hefur dregið sig úr landsliðshópi Þýskalands sem mætir meðal annars Íslandi í undankeppni HM hinn 25. mars í Duisburg.

Þetta staðfesti þýska knattspyrnusambandið á samfélagsmiðlinum sínum í gær en Kroos var leikjahæsti leikmaðurinn í hópnum með 101 landsleik á bakinu.

Kroos er að glíma við meiðsli en hann hefur leikið með Real Madrid frá árinu 2014 og hann varð heimsmeistari með Þjóðverjum árið 2014.