Frákast Tryggvi var öflugur undir körfunni í Þýskalandi í gær.
Frákast Tryggvi var öflugur undir körfunni í Þýskalandi í gær. — Ljósmynd/FIBA
Tryggvi Snær Hlinason átti góðan leik fyrir Zaragoza þegar liðið heimsótti Bamberg í L-riðli Meistaradeildarinnar í körfuknattleik í gær.
Tryggvi Snær Hlinason átti góðan leik fyrir Zaragoza þegar liðið heimsótti Bamberg í L-riðli Meistaradeildarinnar í körfuknattleik í gær. Leiknum lauk með 117:76-sigri Bamberg en Tryggvi Snær skoraði 4 stig og tók sjö fráköst á þeim rúmu tuttugu mínútum sem hann lék. Tryggvi var frákastahæstur í sínu liði en Zaragoza var fimmtán stigum undir í hálfleik og tókst ekki að snúa leiknum sér í vil í síðari háfleik. Þrátt fyrir tapið er Zaragoza í efsta sæti L-riðils með 5 stig eftir þrjá leiki.