Max Cavalera iðar af sköpunargleði.
Max Cavalera iðar af sköpunargleði.
Kraftur Fáir menn eru afkastameiri í málmheimum en Max Cavalera sem meðal annars hefur verið í Sepultura, Soulfly, Cavalera Conspiracy og Killer Be Killed.
Kraftur Fáir menn eru afkastameiri í málmheimum en Max Cavalera sem meðal annars hefur verið í Sepultura, Soulfly, Cavalera Conspiracy og Killer Be Killed. Nú hefur kappinn sett á laggirnar nýtt band, Go Ahead and Die, ásamt syni sínum Igor Amadeus Cavalera, sem spilar á gítar og bassa, auk þess að syngja, og trymblinum Zach Coleman. Fyrsta breiðskífa sveitarinnar kemur út í júní en tónlistarmyndband við fyrsta lagið, Truckload Full Of Bodies, hefur þegar litið dagsins ljós. Um er að ræða bræðing milli þrass og dauðamálms og vel er víst tekið á því. „Fordæmalausir tímar kalla á fordæmalausa tónlist,“ segir Cavalera.