Skíði Margir þurfa að endurskoða ferðaáætlanir í páskavikunni.
Skíði Margir þurfa að endurskoða ferðaáætlanir í páskavikunni. — Morgunblaðið/Eggert
Hótelstjórar lýsa því í samtali við Morgunblaðið að hertar samkomureglur séu mikið högg fyrir viðskiptin. Á sama tíma segjast þeir styðja aðgerðirnar og vona að þær skili tilætluðum árangri.

Hótelstjórar lýsa því í samtali við Morgunblaðið að hertar samkomureglur séu mikið högg fyrir viðskiptin. Á sama tíma segjast þeir styðja aðgerðirnar og vona að þær skili tilætluðum árangri. Aron Pálsson, hótelstjóri á Hótel KEA á Akureyri, segir að upplifunin nú sé svipuð og í upphafi faraldursins fyrir ári. „Helgin núna var fullbókuð en er dottin út. Við áttum von á hátt í 200 gestum.“ Kristbjörg Edda Jóhannsdóttir, hótelstjóri á Sigló hóteli, segir að samkomubannið sé gríðarlegt áfall fyrir hótelið. „Við sáum fram á góða tíð. Það var fullbókað allar helgar út maí og vel bókað á virkum dögum einnig.“

Á Ísafirði voru 60 konur afboðaðar á skíðagöngunámskeið. 6