Fanney Helgadóttir fæddist 16. desember 1930 á Hafursstöðum í Öxarfirði. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga 13. mars 2021. Fanney var dóttir hjónanna Helga Gunnlaugssonar, f. 1888, d. 1983, og Kristínar Gamalíelsdóttur, f. 1892, d. 1966. Systur hennar voru; Jakobína Gunnlaug, f. 1923, d. 2020, Snæfríður, f. 1926, d. 2011, og Sigríður Ingólfa, f. 1929. Fanney fór hefðbundna skólagöngu þess tíma innan sveitar, auk þess fór hún einn vetur í Héraðsskólann á Reykjum í Hrútafirði og annan vetur í Húsmæðraskólann á Löngumýri í Skagafirði.

Fanney eignaðist tvö börn með Olgeiri Sigurðssyni, þau eru:

1. Sigríður Helga, f. 1957 – maki Eiríkur Jóhannsson, f. 1960. Börn: Fanney Margrét, f. 1994, sambýlismaður Egill Moran Rubner Friðriksson. Sóley Sara, f. 1996, sambýlismaður Þórir Þórðarson. Fyrir átti Helga soninn Helga Þór Harðarson, f. 1979, sambýliskona Júlíanna Lára Steingrímsdóttir, þau eiga saman tvær dætur og fyrir átti hann einn son.

2. Halldór Svanur, f. 1958 – maki Elín Maríusdóttir, f.1961. Börn: Baldur Fannar, f. 1979, maki Heiða Rafnsdóttir, þau eiga þrjú börn. Maríus Snær, f. 1984, maki Lára Björk Sigurðardóttir, þau eiga fjögur börn. Halldís Gríma, f. 1992, sambýlismaður Ómar Gunnarsson, þau eiga saman tvær dætur og fyrir átti hún eina dóttur.

Árið 1959 giftist Fanney Baldri Jónssyni, f. 1934 í Ystahvammi í Aðaldal. Þeirra börn eru:

3. Kristín, f. 1960 – maki Kristján St. Halldórsson, f. 1960. Börn: Baldur, f. 1979, sambýliskona Málfríður Þorsteinsdóttir, þau eiga tvö börn. Kolbrún, f. 1983, sambýlismaður Hjálmar Jakob Grétarsson, þau eiga saman tvær dætur og fyrir átti hún eina dóttur. Katrín, f. 1988, hún á einn son.

4. Sigþóra Oddný, f. 1964 – maki Sigurður Kristjánsson, f. 1962. Börn: Kristján, f. 2000, og Þormar, f. 2006. Fyrir átti Sigurður Baldvin, f. 1990, og Karolínu, f. 1993.

5. Böðvar, f. 1967 – maki Linda Hrönn Arnþórsdóttir, f. 1977. Börn: Arnþór Máni, f. 2003, Álfrós Katla, f. 2010, og Emil Orri, f. 2011.

Fanney og Baldur hófu búskap í Ystahvammi árið 1959, þegar þau tóku við af foreldrum Baldurs. Gestkvæmt var á heimilinu og á sumrin voru mörg börn í sveit. Fanney var mikil áhugakona um garðrækt.Hún var listfeng sauma- og hannyrðakona. Hún var virkur félagsmaður í Kvenfélagi Aðaldæla alla sína tíð. Þau hjónin tóku þátt í öllu félagslífi sveitarinnar og næsta nágrennis.

Fanney dvaldi á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga - Skógarbrekku síðustu mánuðina.

Útför fer fram frá Grenjaðarstaðarkirkju 27. mars 2021 klukkan 14.

Slóð, stytt, á streymi:

https://tinyurl.com/u9e35jt6

Hlekk má nálgast á:

https://www.mbl.is/andlat

Elsku mamma okkar er nú fallin frá eftir stutta legu og eftir situr söknuður og tómleiki.

Fanney Helgadóttir ólst upp á Hafursstöðum í Öxarfirði ásamt systrum sínum þremur og þangað leitaði hugurinn oft. Vegasamband var lélegt upp í heiðina á þessum árum og þurftu þær að fara gangandi á skíðum eða á hestum í skólann í Lundi. Ekki var komin sundlaug á þessum tíma svo sundkennslan fór fram í Hafursstaðavatni og afi tók að sér kennsluna. Það kom sér vel því mamma hafði yndi af sundi þegar færi gafst vegna anna. Þetta gjöfula vatn gaf þeim líka silung sem hægt var að veiða allan ársins hring og var mikil búbót. Veðrasamt var uppi á heiðinni og voraði seint en allir höfðu sín áhugamál í einangruninni. Afi var niðri í smíðastofu að vinna ýmis verk svo sem hillur og útskorna hluti en amma las ljóðabækur, sérstaklega eftir Davíð Stefánsson. Þetta tóku systurnar með sér út í lífið og nutu lista á þessu sviði.

Hún fór í Héraðsskólann á Reykjum ásamt Sigríði systur sinni og síðan í Húsmæðraskólann á Löngumýri. Á Löngumýri kynntist hún mörgum námsmeyjum sem mynduðu vinasamband allt til æviloka.

Eftir það fer hún suður til Reykjavíkur í vinnu og kynnist Olgeiri Sigurðssyni og á með honum tvö börn en síðar slitnaði upp úr sambandinu og hún flytur norður til foreldra sinna.

Skömmu seinna dúkkaði upp fyrrverandi skólasveinn, vonbiðill frá Bændaskólanum á Hólum sem er í næsta nágrenni við Löngumýri, en það var töluverður samgangur á milli skólanna í þá daga. Hann hafði komið auga á hana mörgum árum áður og ekki getað gleymt.

Eftir að hún giftist og flutti í Aðaldal breyttist lífið töluvert og verkahringurinn stækkaði eftir því sem börnunum fjölgaði, fimm börn og stórt heimili fyrir utan bústörfin. Einnig vann hún útivið í mörg ár eftir að börnin komust á legg.

Þrátt fyrir það var allt prjónað og saumað á okkur krakkana og voru þá kvöldin og næturnar notuð til að ná öllu sem til þurfti. Þetta voru aldrei venjuleg föt, þau hefðu sómt sér vel í hönnunarbúð í dag og saumaskapurinn eftir því. Mamma var einstaklega listræn eins og hún átti kyn til og allt lék í höndunum á henni. Jafnvel blómin voru alltaf fallegust hjá henni, litlir afleggjarar urðu að fallegu blómi bæði úti og inni. Allt sem viðkom ræktun var hennar áhugamál, hvort sem það var gróðurhúsið eða grænmetisræktun. Gróðurhúsið var hennar yndi og stolt með hangandi vínberjaplöntu fulla af berjum, rósum og fleira. Berjamórinn var heldur ekki langt undan og þar gat hún verið í friði og ró með fallega dalinn í forgrunni. Úr berjunum var búið til og fryst fyrir veturinn. Það má segja að við höfum alist upp með það sem þykir best í dag beint frá býli og hollustan í fyrirrúmi.

Við fórum í nokkrar skemmtilegar mæðgnaferðir erlendis síðustu ár og þá var mikið hlegið og spjallað. Ekki var verra að kíkja í fatabúðir og máta enda hafði mamma alltaf mikinn áhuga á fötum og vildi líta vel út.

Við munum sakna þessara samfunda.

Guð blessi mömmu okkar.

Sigríður Helga, Kristín

og Sigþóra Oddný.

Það er erfitt að meðtaka að elsku amma Fanney hafi kvatt þessa jarðvist. Huganum finnst ennþá eins og ekkert væri eðlilegra en að renna í hlaðið í Ysta-Hvammi og þar stæði amma með afa í dyragættinni, vel tilhöfð í skrautlegum bol með settlegt hár.

„Sæl elskan“ heilsaði hún okkur alltaf með sérstakri áherslu á „elskan“. Það leyndi sér aldrei hvað amma var alltaf glöð að sjá mann, tók á móti manni með hlýjum faðmi og glaðlegu brosi og maður fann hvað henni þótti vænt um okkur.

Laglínan „Það er svo ótalmargt sem minnir þig á“ kemur upp þegar hugsað er til ömmu. Við munum eflaust aldrei heyra ljúfa harmonikkutóna án þess að minnast hennar stíga dansspor með okkur við lögin í morgunútvarpinu, aldrei finna ilm af rósum án þess að hugsa til hennar bardúsa í gróðurhúsinu og aldrei finna bragðið af gómsætum aðalbláberjum án þess sjá hana fyrir okkur í berjamó í brekkunni fyrir ofan bæinn.

Hér væri eflaust hægt að rifja upp endalausar minningar, en það sem skilur kannski mest eftir hjá okkur er ekki endilega hvað hún gerði heldur frekar hvernig hún var: ung í anda, skemmtileg, fyndin og sjarmerandi svo lengi mætti telja.

Hún átti það líka til að vera hrekkjótt. Til dæmis kom stundum fyrir að maður kveinkaði sér undan ýmsum aðskotahlutum sem búið var að troða undir lakið á rúmi manns. Var sú gamla þá yfirleitt ekki langt undan, skellihlæjandi yfir tiltækinu.

Önnur okkar fékk þann heiður að heita í höfuðið á ömmu. Nafnið sem dregur merkingu sína af hinni snævi þöktu eyju sem við köllum Ísland. Hin fagra, uppátækjasama eyja, uppfull af varma sem enginn kveður ósnortinn. Þannig lifir minningin af ömmu Fanneyju í hjarta okkar.

Takk fyrir allt elsku amma, þín er sárt saknað.

Fanney Margrét og Sóley Sara Eiríksdætur.

Elsku amma er fallin frá. Amma Fanney var ótrúleg kona og ég veit að margir munu skrifa um hennar gestrisni, hennar glaðværð, hennar eljusemi og dugnað, hennar þrautseigju, hennar tryggð við sitt samferðafólk, hennar styrk og hennar ósérhlífni.

Það var enda ekkert verk sem amma gat ekki sinnt og hún var lagin við svo að segja allt. Hún var listakokkur, bakari og var einstaklega lagin í höndunum hvort sem var við prjónaskap, að sauma eða skera út jafnvel. Hafði auk þess græna fingur og gróðurhúsið hennar var í æskuminningunni sem hitabeltisskógur!

Ég mun hins vegar alltaf minnast ömmu minnar fyrir hennar einstaka húmor því amma var einfaldlega ein fyndnasta manneskja sem ég hef hitt. Þótt ég hafi notið allra okkar samverustunda eru þau enn efst í huga mér skiptin sem við hlógum saman og það var oft. Amma var hrekkjótt, kaldhæðin, algerlega sönn og var óhrædd að gera grín að sjálfri sér.

Hún var undir lok síns lífs mjög lituð af þeim sjúkdómi sem hrjáði hana. Hún mundi lítið og þegar við fjölskyldan fórum til hennar norður í síðasta sinn lá fyllilega ljóst fyrir hve alvarleg veikindin væru. Okkur grunaði reyndar ekki þá að það yrði okkar síðasta samverustund en heimsfaraldur ásamt öðru gerði okkur ekki kleift að kveðja með þeim hætti sem við hefðum kannski viljað.

Hennar persónuleiki verður hins vegar alltaf ódauðlegur í hugum okkar fjölskyldunnar sem nú minnumst hennar. Það voru foréttindi að eiga hana að svo lengi og fyrir börnin að fá að kynnast langömmu sinni í sveitinni. Þær minningar sem við eigum með henni eru okkur dýrmætar og við erum þakklát fyrir þær.

Við fjölskyldan vottum jafnframt öllum þeim er stóðu ömmu Fanneyju nærri samúð okkar.

Helgi Þór Harðarson

og fjölskylda.

Elsku Fanney mín. Takk fyrir allar ánægju- og gleðistundir liðinna ára.

Margs er að minnast,

margt er hér að þakka.

Guði sé lof fyrir liðna tíð.

Margs er að minnast,

margs er að sakna.

Guð þerri tregatárin stríð.

Far þú í friði,

friður Guðs þig blessi,

hafðu þökk fyrir allt og allt.

Gekkst þú með Guði,

Guð þér nú fylgi,

hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.

(V. Briem)

Góða ferð í sumarlandið mín kæra, ég veit að það verður vel tekið á móti þér.

Þínir vinir,

Guðrún Jóhanna og Ingi.