Skáldsagan Jack eftir Marilynne Robinson er komin út í þýðingu Karls Sigurbjörnssonar. Jack er týndur sonur prestsins Johns Ames í smábænum Gilead. Ástir takast með honum og kennaranum Dellu Miles sem er líka prestsdóttir.
Skáldsagan Jack eftir Marilynne Robinson er komin út í þýðingu Karls Sigurbjörnssonar. Jack er týndur sonur prestsins Johns Ames í smábænum Gilead. Ástir takast með honum og kennaranum Dellu Miles sem er líka prestsdóttir. En fagurt samband þeirra er þyrnum stráð. Della er svört á hörund og aðskilnaður kynþáttanna er þá enn ríkjandi víða í Bandaríkjunum. „Mögnuð skáldsaga um ást og átök, trú og siðgæði, illsku og hugrekki, vanmátt og von,“ segir í kynningu útgefanda, Uglu. Bækur Robinson hafa hlotið öll helstu bókmenntaverðlaun Bandaríkjanna og verið þýddar á 35 tungumál.