Meistaradeild Alexander Petersson á stórleiki framundan.
Meistaradeild Alexander Petersson á stórleiki framundan. — AFP
Alexander Petersson og samherjar hans í þýska toppliðinu Flensburg eru komnir í átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í handknattleik án þess að þurfa að spila. Zagreb frá Króatíu gat ekki mætt til leiks vegna kórónuveirusmita.

Fyrir vikið hefur Flensburg verið úrskurðaður sigur í báðum leikjum og er komið í átta liða úrslit þar sem andstæðingurinn verður annaðhvort Porto eða Aalborg.