Stórbændur. V-Allir
Norður | |
♠G85 | |
♥2 | |
♦KG86 | |
♣D8754 |
Vestur | Austur |
♠ÁK1032 | ♠974 |
♥D | ♥KG10976 |
♦109742 | ♦5 |
♣62 | ♣G103 |
Suður | |
♠D6 | |
♥Á8543 | |
♦ÁD3 | |
♣ÁK9 |
Suður spilar 4♥.
Suður er ekki í öfundsverðri stöðu. Vestur opnar á 2♠ (spaði og láglitur) og austur hækkar hindrandi í 3♠. Hvað gera bændur Suðurlands nú?
Vissulega mætti veðja blint á 3G (sem heppnast vel) eða 4♥ (sem heppnast illa), en dobl er eina sögnin sem heldur opnu samtali við makker. Segjum að suður dobli og norður svari á 4♣. Hvað þá?
Tveir stórbændur á OCBL sögðu 4♥ í þeirri stöðu og sátu þar fastir. Norður bjóst við rennandi langlit og passaði. Og þá vaknar þriðja og mikilvægasta spurningin: Er það skynsamleg túlkun á sögninni? Er suður að lýsa yfir slemmuáhuga með sterkum hjartalit eða er hann að þreifa fyrir sér eftir besta fitti?
Enski landsliðmaðurinn Jason Hackett tjáði sig einu sinni um svipað vandamál: „Í þröngri stöðu verður að forgangsraða og fitt kemur alltaf á undan styrk.“