Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Genin eru góð, í ættinni er langlífi og flest höfum við ung orðið foreldrar. Slíkt kann að skýra að sex ættliðir nái saman, sem er fátítt,“ segir Sigursveinn Bjarni Jónsson í Sandgerði. Á páskadag var sonarsonur hans borinn til skírnar í Sandgerðiskirkju og fékk nafnið Natan Bjarni Kristófersson. Sá er fæddur 11. október á síðasta ári og er því að verða sex mánaða.
Afkomendur orðnir 146
Ættarkapallinn er annars sá að faðir Natans er Kristófer Máni Sigursveinsson, fæddur 1997, nemi við Háskólann á Akureyri og búsettur þar. Faðir hans er Sigursveinn Bjarni, sem fyrr er nefndur, sölustjóri hjá Iceland Seafood, fæddur 1976. Móðir hans er Júlía Sigurbjörg Stefánsdóttir í Sandgerði, sem er fædd 1960, starfsmaður hjá snyrtivörufyrirtækinu Taramar. Faðir hennar er Stefán Þór Guðmundsson, fæddur 1939, lengi sjómaður í Sandgerði. Hann er sonur Guðnýjar Nönnu Stefánsdóttur, sem er fædd 1922, komin á 99. aldursár og heldur eigið heimili í Keflavík.Alls eignaðist Guðný átta börn og sjö þeirra eru á lífi. Alls eru afkomendurnir orðnir 146 talsins, að Natan Bjarna meðtöldum, en Guðný er langalangalangamma hans.
Skírn var margoft frestað
„Vegna farsóttarinnar var margoft búið var að fresta skírnarathöfn. En loksins tókst þetta þegar þau Kristófer Máni, sonur minn, og Sara Ísfold Kristjánsdóttir, unnusta hans, komu frá Akureyri hingað suður í páskafrí. Þá var lag og sr. Sigurður Grétar Sigurðsson var laus,“ segir Sigursveinn Bjarni og bætir við að Natan Bjarni sé afar líkur föður sínum. Svipur sveinsins unga sé mjög í föðurættina, en drættir móðurfólksins sjáist vissulega líka.„Skírnarathöfnin var virkilega falleg og góð stund. Hins vegar varð að gæta afar vel að öllum sóttvörnum og var farið vandlega eftir öllum þeim tilmælum sem gilda nú um stundir. Fjölskyldan litla fagnaði svo áfanganum í faðmi nánustu fjölskyldu.“