Daníel Eiríksson var fæddur 1990.
Daníel Eiríksson var fæddur 1990.
Einhver tengsl voru á milli Daníels Eiríkssonar, sem lést sl. laugardag af áverkum sem hann hlaut þegar ráðist var á hann í Kópavogi á föstudag, og mannsins sem situr í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar málsins.

Einhver tengsl voru á milli Daníels Eiríkssonar, sem lést sl. laugardag af áverkum sem hann hlaut þegar ráðist var á hann í Kópavogi á föstudag, og mannsins sem situr í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar málsins.

Margeir Sveinsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við mbl.is að ekki liggi fyrir hversu mikil samskiptin hafi verið en þau hafi verið einhver í gegnum tíðina.

Maður á þrítugsaldri var á páskadag úrskurðaður í Héraðsdómi Reykjaness í fimm daga gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn lögreglu á andláti Daníels. Hann segir andlátið hafa verið slys.

Lögreglan telur að andlátið tengist ekki skipulagðri starfsemi og að það hafi borið að með aðkomu annars en ekki liggur fyrir á þessari stundu hvort það hafi verið með ásetningi eða af gáleysi.

Að sögn Margeirs er lögreglan að reyna að átta sig á því hvað gerðist, m.a. er beðið eftir niðurstöðum vettvangsrannsóknar og krufningar með tilliti til áverka. Lögreglan er einnig með fleiri gögn til rannsóknar, meðal annars hvort atvikið hafi náðst á eftirlitsmyndavélar. Ekki liggur fyrir hvort óskað verði eftir lengra gæsluvarðhaldi.