Mest hlutabréfaviðskipti í marsmánuði voru með bréf Arion banka.
Mest hlutabréfaviðskipti í marsmánuði voru með bréf Arion banka. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hlutabréf Úrvalsvísitala aðallista Kauphallar Íslands lækkaði um 0,6% í mars og stendur vísitalan nú í 2.885,2 stigum. Heildarviðskipti með hlutabréf í mars námu 91,8 milljörðum króna eða 3.990 milljónum á dag.

Hlutabréf

Úrvalsvísitala aðallista Kauphallar Íslands lækkaði um 0,6% í mars og stendur vísitalan nú í 2.885,2 stigum.

Heildarviðskipti með hlutabréf í mars námu 91,8 milljörðum króna eða 3.990 milljónum á dag. Það er 10,5% lækkun frá fyrri mánuði, en í febrúar námu viðskipti með hlutabréf 4.458 milljónum á dag. Milli ára jukust viðskipti hins vegar um 16,7% en viðskipti í mars 2020 námu 3.419 milljónum á dag. Samkvæmt tilkynningunni voru mest viðskipti í mánuðinum með bréf Arion banka, 38,7 milljarðar, Marel, 7,9 milljarðar, Kviku banka, 6,9 milljarðar, Símans, 6,7 milljarðar og Festi, 5,9 milljarðar.

Heildarfjöldi viðskipta með hlutabréf í mars var 6.106 talsins eða 265 að jafnaði á dag.