Listamaðurinn Ásgeir við tvö verka sinna á sýningunni í Norr11.
Listamaðurinn Ásgeir við tvö verka sinna á sýningunni í Norr11. — Ljósmynd/Anna Kristín Óskarsdóttir
Myndlistarsýning Ásgeirs Skúlasonar, Athugið, athugið , hefur verið opnuð í Norr11 að Hverfisgötu 18 í Reykjavík. Á henni sýnir Ásgeir ofin textílverk þar sem hann notar krullubönd sem flestir þekkja og eru notuð utan um gjafapakka.

„Hann notar þriggja ása aðferð svo úr verður ísometrískt munstur sem skapar þrívídd á tvívíðum fleti. Munstrið endurtekur sig út allan rammann og skapar sjónhverfingu. Hin verkin á sýningunni eru veggskúlptúrar gerðir úr teipi sem hann rúllar í óteljandi hringi,“ segir í tilkynningu og að verkin einkennist af þráhyggjukenndri endurtekningu þar sem Ásgeir leitist við að fanga athygli áhorfandans. Titill sýningarinnar vísi einmitt í þessa þörf til að fanga athyglina, hvort sem er í augnablik eða til lengri tíma.

Ásgeir fæddist árið 1984 og býr og starfar í Reykjavík. Hann lauk fornámi við Myndlistarskólann í Reykjavík áður en hann hóf nám í Listaháskóla Íslands og útskrifaðist þaðan 2013 með BA-gráðu í myndlist.

Sýningin stendur yfir til 10 maí.