Heilbrigðisráðherra hefur lagt fram frumvarp á Alþingi þar sem nikótínvörur svo sem nikótínpúðar verða felldir undir sömu lög og reglur og gilda um rafrettur og áfyllingar fyrir þær.

Heilbrigðisráðherra hefur lagt fram frumvarp á Alþingi þar sem nikótínvörur svo sem nikótínpúðar verða felldir undir sömu lög og reglur og gilda um rafrettur og áfyllingar fyrir þær.

Gagnrýnt hefur verið, m.a. af Krabbameinsfélaginu, að nikótínpúðar hafi um árabil verið markaðssettir og seldir án allra takmarkana eða eftirlits. Lagt er til í frumvarpi ráðherra að sömu reglur gildi um aldurstakmark fyrir kaup og sölu á nikótínvörum og þegar gilda um rafrettur og áfyllingar fyrir þær, „þannig að einungis einstaklingum 18 ára og eldri verði heimilt að kaupa nikótínvörur og sama gildi um þá sem selja nikótínvörur. Lagt er til að óheimilt verði að hafa á umbúðum nikótínvara texta eða myndmál sem geti höfðað sérstaklega til barna og ungmenna, meðal annars með myndskreytingum eða slagorðum, og þannig hvatt til neyslu nikótínvara, en hið sama gildir í dag um rafrettur og áfyllingar fyrir þær. Lagt er til að kveðið verði á um að tryggt sé að nikótínvörur séu ekki staðsettar þar sem börn nái til,“ segir í greinargerð.

Óheimilt verður skv. frumvarpinu að selja nikótínvörur í skólum og á öðrum stöðum sem ætlaðir eru til félags-, íþrótta- og tómstundastarfs barna og ungmenna og á heilbrigðisstofnunum og öðrum stöðum þar sem heilbrigðisþjónusta er veitt.

HMS hafi eftirlit með höndum

Gerðar verða þær kröfur að allar nikótínvörur, sem settar eru á markað hér á landi, verði tilkynntar Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sem mun hafa eftirlit með gæðum, öryggi og merkingum varanna. Veita á stofnuninni heimild til að taka gjald fyrir móttöku tilkynninganna, geymslu þeirra, meðhöndlun og greiningu upplýsinga.