Guðný Helga Björnsdóttir fæddist 7. desember 1929. Hún lést 7. mars 2021.

Útför Guðnýjar fór fram 20. mars 2021.

Þegar ég hugsa til þín koma upp minningar frá því að ég var yngri, þegar við sátum við eldhúsborðið og spiluðum á spil. Þú hafðir næga þolinmæði til þess að kenna mér og tíma til þess að sitja við þetta lengi vel. Ég man að eitthvert sumarið vorum við vinkona mín sendar suður til ykkar í tvær vikur og afi kenndi okkur á strætó, svo að við gætum farið á hverjum degi í sund í Árbæjarlaug. Það var sama hvort við vorum heima hjá ykkur í Reykjavík eða í sumarbústaðnum á Hólmavík, það var alltaf hægt að dunda sér í rólegheitum við spil eða lestur bóka. Hvíl í friði, elsku amma mín.

Guðný Guðmundsdóttir.