Freyr Bjarnason freyr@mbl.

Freyr Bjarnason

freyr@mbl.is

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir er með minnisblað í smíðum sem sent verður heilbrigðisráðherra í kjölfar frávísunar Landsréttar á kæru sóttvarnalæknis vegna úrskurðar héraðsdóms um að ólögmætt sé að skylda fólk í sóttvarnahús. Þetta segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.

Um var að ræða fjögur aðskilin mál en þeim var öllum vísað frá vegna skorts á lögvörðum hagsmunum. Dómur héraðsdóms er því enn í gildi. „Við munum í sameiningu freista þess að ná þeim árangri eftir sem áður að takmarka líkur á smitum á landamærunum. Það er markmið og vonandi finnum við góðar leiðir til þess, en þær útiloka samt sem áður ekki að við þurfum að leita leiða til að bæta lagaumhverfið,“ segir Svandís.

Spurð hvort nýtt frumvarp verði lagt fram um sóttvarnahús segir hún fyrstu skrefin vera þau að fara yfir stöðuna á grundvelli gildandi laga. „Það skiptir máli að ný reglugerð taki gildi eins fljótt og hægt er og svo metum við á grundvelli þess hvort við þurfum að fara fram með einhvers konar breytingar á sóttvarnalögum til að styrkja grunninn,“ bætir hún við og segir nýja reglugerð taka gildi á allra næstu dögum. Hún gerir ráð fyrir að málið verði rætt á ríkisstjórnarfundi á föstudaginn.

Þar sem Landsréttur vísaði kæru Þórólfs frá stendur dómur héraðsdóms um að ólögmætt sé að skylda fólk í sóttkvíarhús geti það sætt sinni sóttkví annars staðar.

Spurð hvort ekki hefði verið ákjósanlegt að fá efnislega niðurstöðu í málið frá Landsrétti, í stað frávísunar, segir Svandís:

„Ég held að það hefði verið málinu til góðs, sérstaklega þeim sjónarmiðum sem lúta að almannahagsmunum, að fá efnislega umfjöllun í Landsrétti um þessi mál. Þetta eru mjög ríkir hagsmunir sem eru þarna undir fyrir samfélagið allt, þannig að það hefði verið gott fyrir málið.“