Eldgos Ný gossprunga opnaðist um miðnætti í fyrrinótt og gaus því á þremur stöðum í gær. Nýja hraunið streymdi bæði í Geldingadali og eins niður í Meradali þar sem er glæsileg eldá.
Eldgos Ný gossprunga opnaðist um miðnætti í fyrrinótt og gaus því á þremur stöðum í gær. Nýja hraunið streymdi bæði í Geldingadali og eins niður í Meradali þar sem er glæsileg eldá. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Þetta verður bara flóknara og flóknara,“ sagði Páll Einarsson, jarðeðlisfræðingur og prófessor emeritus, um framvindu eldgossins í Fagradalsfjalli. Um miðnætti í fyrrinótt opnaðist þar þriðja gossprungan.

Guðni Einarsson

gudni@mbl.is

„Þetta verður bara flóknara og flóknara,“ sagði Páll Einarsson, jarðeðlisfræðingur og prófessor emeritus, um framvindu eldgossins í Fagradalsfjalli. Um miðnætti í fyrrinótt opnaðist þar þriðja gossprungan. Hún er á milli sprungunnar ofan við Meradali og þar sem eldgosið hófst í Geldingadölum.

„Sprungurnar sem gýs á núna mynduðust eiginlega samfara fyrsta gosinu. Þetta er að hluta til á gömlum misgengjum,“ sagði Páll. Hann sagði að mælingar á hraunmassanum muni leiða í ljós hve mikið kemur upp af kviku. Nýjustu mælingar benda til þess að kvikuframleiðsla í eldgosinu hafi verið nokkuð jöfn frá byrjun. Tilkoma nýju sprungnanna hefur því væntanlega dregið úr kvikuflæðinu í syðsta og elsta eldvarpinu í Geldingadölum.

„Þetta á eftir að koma betur í ljós eftir því sem fleiri mælingar eru gerðar og yfir lengra tímabil,“ sagði Páll. Hann sagði að atburðarásin sem nú stendur yfir á Reykjanesskaga verði sífellt merkilegri eftir því sem tíminn líður. Vísindamenn eigi fullt í fangi með að fylgjast með framvindunni. „Ég held að enginn reyni lengur að spá fyrir um hvað kann að gerast,“ sagði Páll.

Getur enst eða endað skjótt

Því hefur verið haldið fram að stöðug og jöfn kvikuframleiðsla sé vísbending um að eldgosið geti staðið lengi. „Það er vissulega með í spilinu, en við þekkjum ýmis dæmi um að eldgos geta endað mjög snögglega,“ sagði Páll. Honum er minnisstæður endirinn á síðasta Kröflugosinu 1984. „Það var miklu öflugra en þetta og var í vexti í heila viku þar til það snögghætti. Þá gerðist eitthvað í gosrásinni. Hún hefur rofnað eða eitthvað teppt hana. Það getur alveg gerst að eldgosið í Fagradalsfjalli endi mjög snögglega.“

Páll sagði að framvinda eldgosa virðist oft vera tilviljanakennd. „Það getur hvað sem er gerst í Fagradalsfjalli. Gosið getur mallað áfram og þetta getur líka hætt skyndilega. Það eru dæmi um hvort tveggja þarna allt í kring,“ sagði Páll.

Hann sagði að þarna í nágrenninu séu ummerki um langvarandi og hægfara eldgos sem hafa staðið árum og mögulega áratugum saman. Einnig eru dæmi um lítil sprungugos eins og gosið á Fagradalsfjalli er enn sem komið er. Rétt þar fyrir norðan eru tvö gömul hraun sem runnu úr stuttum sprungum í hlíðum Fagradalsfjalls.

Páll sagði að Fagradalsfjall hafi ekki þótt líklegasti gosstaðurinn á Reykjanesskaga. „Það var þó engan veginn útilokað að þar gæti gosið. Öll flekaskilin á Reykjanesskaganum eru eldvirk og þetta er vissulega á þeim. En þessi partur flekaskilanna hefur verið í lengstu goshléi. Það hefur ekki gosið í Fagradalsfjalli eða því kerfi mjög lengi eða í ein 6.000 ár. Kerfin báðum megin við, Krýsuvíkurkerfið og Svartsengiskerfið, gusu bæði á síðasta virka gostímabili í upphafi Íslandssögunnar.“

Hraunið tók myndavél og gasmælitæki

Hraunstraumur frá sprungunni sem opnaðist um miðnætti í fyrrinótt á Fagradalsfjalli hreif með sér vefmyndavél mbl.is/K100 og gasmælitæki Veðurstofu Íslands.

Mbl.is/K100 er með aðra myndavél við gosstöðvarnar og er hægt að sjá útsendinguna á mbl.is og á rás 9 í Sjónvarpi Símans.

Baldur Bergsson, sérfræðingur í mælarekstri hjá Veðurstofunni, sagði að mælistöðin hefði verið rétt sunnan við vefmyndavélina.

„Þessi stöð var sett upp til að fylgjast með þróun eldgossins og til að skrá verðmæt gögn,“ sagði Baldur. Hann sagði að stöðin hefði mælt koltvísýring, brennisteinstvíoxíð, brennisteinsvetni og vetni. Hún hætti að senda gögn rétt fyrir klukkan 23.00 í fyrrakvöld.

Veðurstofan setti upp tvær stöðvar í fyrradag til að vakta loftgæði á gossvæðinu við Fagradalsfjall.