„Heilsan er fín. Ég er smá slappur en ekki neitt yfirþyrmandi. Reyndar reynir lítið á mann þar sem maður er lokaður inni á hóteli.
„Heilsan er fín. Ég er smá slappur en ekki neitt yfirþyrmandi. Reyndar reynir lítið á mann þar sem maður er lokaður inni á hóteli. Í raun lýsir þetta sér eins og venjuleg veikindi hjá mér en hræðslan við þennan sjúkdóm er til staðar því hann getur bitið mann síðar. Sérstaklega þar sem margt er framundan hjá mér. Fyrir mig er auðvitað svekkjandi að missa af mótinu því maður er að berjast um sæti á heimslistanum,“ segir Sveinbjörn Iura m.a. en hann er í einangrun í Tyrklandi eftir að hafa greinst með kórónuveiruna. 54