Nýjasti handhafinn Frá heimildamyndahátíðinni Skjaldborg á Patreksfirði sem hlaut Eyrarrósina síðast. Næsta viðurkenning verður afhent þar.
Nýjasti handhafinn Frá heimildamyndahátíðinni Skjaldborg á Patreksfirði sem hlaut Eyrarrósina síðast. Næsta viðurkenning verður afhent þar. — Ljósmynd/Patrik Ontkovic
Fyrirkomulag afhendingar Eyrarrósarinnar, viðurkenningarinnar sem veitt er framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins, verður með breyttu sniði næst þegar hún verður afhent.

Fyrirkomulag afhendingar Eyrarrósarinnar, viðurkenningarinnar sem veitt er framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins, verður með breyttu sniði næst þegar hún verður afhent.

Allt frá árinu 2005 hafa Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Icelandair (áður Flugfélag Íslands) staðið saman að Eyrarrósinni. Fyrirkomulag viðurkenningarinnar hefur verið með svipuðu sniði allt frá upphafi, en við endurnýjun samstarfssamnings í ár var ákveðið að endurskoða skipulagið með það í huga að styrkja Eyrarrósina enn frekar sem raunverulegan bakhjarl lista- og menningarlífs utan höfuðborgarsvæðisins. Samráð var haft við menningarfulltrúa á landsbyggðinni í því ferli.

Gert hærra undir höfði

Helstu breytingar á fyrirkomulagi verðlaunanna, að sögn Vigdísar Jakobsdóttur, listræns stjórnanda Listahátíðar í Reykjavík, eru að Eyrarrósin verður hér eftir veitt annað hvert ár í stað hvers árs eins og verið hefur. Með því að veita viðurkenninguna annað hvert ár telja aðstandendur hennar skapast svigrúm til þess að gera hverjum verðlaunahafa mun hærra undir höfði en verið hefur. Viðurkenningin verður sem fyrr veitt verkefni sem hefur fest sig ríkulega í sessi, er vel rekið, með skýra framtíðarsýn og hefur sannarlega listrænt gildi og slagkraft út í samfélagið.

Eyrarrósarhafa verður boðið að standa að veglegum viðburði á Listahátíð 2022. Boðinu fylgir fjárhagslegur stuðningur til framleiðslu viðburðarins og framkvæmdar. Viðburðurinn verður hluti af aðaldagskrá Listahátíðar í Reykjavík og kynntur sem slíkur. Þá verður vandað, stutt heimildamyndband framleitt um Eyrarrósarhafann.

Verðlaunafé til Eyrarrósarhafa verður aukið úr 2 milljónum kr í 2,5 milljónir kr. Einnig verða veitt þrenn 750 þúsund króna hvatningarverðlaun til nýrri verkefna.Hvatningarverðlaunin eru veitt verkefnum sem eru yngri en þriggja ára en þykja sannarlega vera nýbreytni og/eða viðbót við lista- og menningarlíf svæðisins. Fyrir utan verðlaunaféð fá verkefnin 100 þúsund króna gjafabréf frá Icelandair.

Fjölbreyttir verðlaunahafar

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um Eyrarrósina 2021 og rennur umsóknarfrestur út 26. apríl. Nánari upplýsingar má finna á vef Listahátíðar í Reykjavík.

Hefð er fyrir því að veita verðlaunin í heimabyggð síðasta Eyrarrósarhafa og þannig verður það áfram. Verðlaunaafhending mun nú fara fram í maí í stað febrúar áður. Þar sem heimildamyndahátíðin Skjaldborg hlaut viðurkenninguna síðast fer afhendingin fram á Patreksfirði í ár. Frú Eliza Reid, verndari Eyrarrósarinnar, afhendir verðlaunin.

Þjóðlagahátíð á Siglufirði hlaut Eyrarrósina í fyrsta skipti sem hún var afhent. Aðrir viðburðir, stofnanir og hátíðir sem hafa hlotið hana eru LungA-hátíðin, Strandagaldur á Hólmavík, Rokkhátíð alþýðunnar á Ísafirði – Aldrei fór ég suður, Landnámssetrið í Borgarnesi, Ferskir vindar í Garði, List í ljósi á Seyðisfirði, Eistnaflug í Neskaupstað, Verksmiðjan á Hjalteyri, Frystiklefinn á Rifi, Áhöfnin á Húna, Skaftfell – Miðstöð myndlistar á Austurlandi, Safnasafnið á Svalbarðsströnd, Sumartónleikar í Skálholti og Tónlistarhátíðin Bræðslan.