Landsmót Síungir spretthlauparar á Landsmóti fyrir 50 ára og eldri.
Landsmót Síungir spretthlauparar á Landsmóti fyrir 50 ára og eldri. — Ljósmynd/UMFÍ
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Landsmót UMFÍ 50 ára og eldri verður haldið í Borgarnesi síðustu helgina í ágúst. Mótshaldari er Ungmennasamband Borgarfjarðar (UMSB) í samstarfi við Borgarbyggð. „Við erum gríðarlega spennt að halda Landsmót UMFÍ 50+ í Borgarnesi í lok ágúst.

Landsmót UMFÍ 50 ára og eldri verður haldið í Borgarnesi síðustu helgina í ágúst. Mótshaldari er Ungmennasamband Borgarfjarðar (UMSB) í samstarfi við Borgarbyggð.

„Við erum gríðarlega spennt að halda Landsmót UMFÍ 50+ í Borgarnesi í lok ágúst. Við teljum að þá verði búið að bólusetja stærstan hluta þjóðarinnar og öruggt að halda mótið. En að sjálfsögðu munum við gæta okkar í hvívetna og gæta fyllsta öryggis án þess að það komi niður á gleðinni,“ segir Ómar Bragi Stefánsson, framkvæmdastjóri móta UMFÍ, í tilkynningu frá félaginu.

Nóg verður um að vera hjá UMFÍ í ágúst næstkomandi en um verslunarmannahelgina stendur til að halda Unglingalandsmótið á Selfossi. Öllum mótum og flestum viðburðum UMFÍ var frestað á síðasta ári vegna veirufaraldursins, þar á meðal Landsmóti UMFÍ 50+ og Unglingalandsmótinu auk Íþróttaveislunnar.

Ómar segir stjórn UMFÍ og landsmótsnefnd UMFÍ 50+ binda vonir við að ástand til mótahalds verði orðið hagfellt í lok ágúst.

Hreyfing og keppni

„Við vonum að hægt verði að halda fjölmenn mót í samræmi við þær sóttvarnaaðgerðir sem verða mögulega í gildi í lok sumars. Aðstæður verða að sjálfsögðu metnar eftir því sem nær dregur mótinu í Borgarnesi og gripið til nauðsynlegra aðgerða ef þarf. Í lok ágúst verður vonandi aldeilis kominn tími til að gleðjast,“ segir Ómar Bragi.

Landsmót 50+ er blanda af íþróttakeppni og hreyfingu af ýmsum toga sem stuðlar að ánægju fólks á besta aldri til að njóta þess að hreyfa sig saman. Mótið hefur farið fram árlega víða um land síðan árið 2011 og er öllum opið sem verða 50 ára á þessu ári – og öllum eldri.

Engin krafa er um að vera skráður í íþróttafélag til að geta tekið þátt í viðburðum UMFÍ. Þátttökugjald á mótið er 4.900 krónur.