Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir leikur til úrslita um sænska meistaratitilinn í blaki með félagsliði sínu Hylte/Halmstad en liðið vann Örebro 3:0 í undanúrslitum í Halmstad.
Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir leikur til úrslita um sænska meistaratitilinn í blaki með félagsliði sínu Hylte/Halmstad en liðið vann Örebro 3:0 í undanúrslitum í Halmstad. Sigur Hylte/Halmstad var afar sannfærandi en liðið vann fyrsta settið 25:20, annað settið 25:7 og það þriðja 25:18.
Jóna Guðlaug átti frábæran leik og var valin kona leiksins en liðið mætir Engelholm í úrslitaeinvígi um sænska meistaratitilinn. Fyrsti úrslitaleikur liðanna fer fram í dag. bjarnih@mbl.is