[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Ágúst Ingi Jónsson Höskuldur Daði Magnússon Í breyttu aðalskipulagi fyrir Vífilsstaðaland í Garðabæ er gert ráð fyrir þeim möguleika að vegarkafli við fjölbýlishús sunnan við Þorrasali í Kópavogi verði lagður í stokk.

Ágúst Ingi Jónsson

Höskuldur Daði Magnússon

Í breyttu aðalskipulagi fyrir Vífilsstaðaland í Garðabæ er gert ráð fyrir þeim möguleika að vegarkafli við fjölbýlishús sunnan við Þorrasali í Kópavogi verði lagður í stokk. Um er að ræða austurhluta Vorbrautar, sem liggja á við 13. braut golfvallar Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar.

Bæjarstjórar sveitarfélaganna, Gunnar Einarsson og Ármann Kr. Ólafsson, hafa gert með sér samkomulag um þessa breytingu. Skipulagsstofnun hafði lýst því yfir að ekki gæti komið til staðfestingar á aðalskipulagsbreytingunni fyrr en niðurstaða lægi fyrir milli sveitarfélaganna um tengingu á gatnakerfi þeirra í Hnoðraholti.

Mótmæli dregin til baka

Í samkomulagi bæjarstjóranna kemur fram „að Kópavogur samþykkir að draga til baka mótmæli í umsögn um aðalskipulagstillögu Garðabæjar varðandi tengingu fyrirhugaðs hverfis í Hnoðraholti við Arnarnesveg um Leirdalsop enda er komið á móts við sjónarmið um lagningu tengibrautar í stokk. Jafnframt samþykkir Kópavogur að falla frá áformum um að fella út tengingu brautarinnar við gatnakerfi Kópavogs í tillögu að nýju aðalskipulagi sem er til athugunar hjá Skipulagsstofnun.“

Í nýrri greinargerð með deiliskipulagi Hnoðraholts norður segir: „Ný safngata, Vorbraut, mun tengjast Vetrarbraut efst á holtinu og liggja eftir háholtinu, meðfram bæjarmörkum Kópavogs og tengjast Arnarnesvegi á hringtorgi við Leirdalsop. Austast á móts við Þorrasali í Kópavogi mun Vorbraut verða lögð í stokk nema lega hennar verði endurskoðuð við gerð deiliskipulags fyrir golfvöllinn.“

Í takt við uppbyggingu

Um tímasetningu framkvæmda við stokkinn segir Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ, að komi til þess að farið verði í að leggja Vorbraut að hluta í stokk þyrfti framkvæmdin helst að vera í takt við uppbyggingu í Hnoðraholti og Vetrarmýri í Garðabæ og þegar deiliskipulag golfvallar- og útivistarsvæðis liggi fyrir.

Um kostnað við stokkinn segir hann að þær tölur liggi ekki fyrir, enda sé ekki búið að hanna Vorbrautina. En hver á að borga? ,,Mér þætti eðlilegt að sveitarfélögin skiptu kostnaðinum á milli sín,“ segir Gunnar.

Umferðarþunginn allt að fimmfaldast

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi, segir að þetta sé ekki í fyrsta sinn sem slíkt samkomulag sé gert. „Það er kannski ekki algengt en við Gunnar höfum áður þurft að setjast niður og lenda málum varðandi skipulag á mörkum Kópavogs og Garðabæjar.“

Hann segir að umræddur samningur hafi falið í sér góða niðurstöðu fyrir báða aðila. „Byggð hefur þést í Garðabæ. Við það hafa forsendur breyst talsvert sem varð til þess að við töldum að ekki væri hægt að halda sig við þá veglínu sem eldra skipulag gerði fyrir enda hefur umferðarþunginn allt að fimmfaldast.“

Ármann segir aðspurður að ekki liggi fyrir hver kostnaður við þetta verði. Hann telur þó ljóst að nágrannar sínir í Garðabæ beri þann kostnað. „Þeir sem leggja veg í sínu sveitarfélagi, þeir borga. Það er bara þannig. Það gæti fallið smá kostnaður á Kópavog við að færa tengingu fjær byggð en það verður óverulegt.“

Engin kostnaðargreining

Samkomulagið var samþykkt á fundi í bæjarstjórn Garðabæjar 18. febrúar. Sara Dögg Svanhildardóttir lagði fram bókun fyrir hönd bæjarfulltrúa Garðabæjarlistans sem greiddu atkvæði gegn samþykktinni á þeim forsendum að engin kostnaðargreining lægi fyrir né hver greiddi framkvæmdina. Mikil óvissa væri um kostnað og endanlega útfærslu, sagði í bókuninni.

Töldu óskýrt hvernig staðið yrði að málum

Samkomulagið var samþykkt á fundi í bæjarstjórn Kópavogs 9. mars með átta atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Ragnhildar Reynisdóttur og Sigurbjargar E. Egilsdóttur. Í bókun þeirra segir:

„Samkomulag þetta kemur til vegna athugasemda Skipulagsstofnunar á nýjum rammahluta um Vífilsstaðaland í Garðabæ og við athugun á nýju aðalskipulagi Kópavogs. Samkomulagið snýr að því að koma vegi við Þorrasali í stokk eða fundin ný lega við mótun deiliskipulags golfvallar- og útivistarsvæðis. Undirritaðar sitja hjá við afgreiðslu þessa samkomulags vegna óskýrleika, þ.e hvort stokkurinn komi, hvað hann kostar og hver borgi hann eða hvort fundin verði ný lega við mótun deiliskipulags golfvallarins þá á kostnað útisvistasvæðisins.“