Filippus, eiginmaður Elísabetar 2. Bretadrottningar og hertogi af Edinborg, verður borinn til grafar í dag. Útförin verður lágstemmd miðað við það sem venjulega tíðkast, bæði að ósk hertogans sjálfs og einnig vegna heimsfaraldursins.

Einungis 30 manns verða viðstaddir sjálfa athöfnina vegna sóttvarnaráðstafana, en hún verður sýnd í beinni útsendingu víða um veröld.

Athöfnin mun endurspegla ævi Filippusar og feril, en hann var foringi í breska flotanum þar til Elísabet varð drottning árið 1952. Nick Carter, yfirmaður breska herráðsins, sagði að athöfnin myndi vera minnisvarði um langa og góða ævi hertogans, á sama tíma og hún myndi sýna hversu mjög hann væri virtur meðal breskra hermanna.

Lík Filippusar verður flutt til athafnarinnar í sérhönnuðum Land Rover-jeppa, en hertoginn kom sjálfur að hönnuninni. Voru fyrstu drög að jeppanum gerð árið 2003. Athöfnin hefst kl. 13:40 að íslenskum tíma, og verður hertoginn lagður tímabundið til hvílu í grafhvelfingu konungsfjölskyldunnar að henni lokinni, en hann mun að endingu hvíla við hlið Elísabetar, eiginkonu sinnar til 73 ára, þegar hún kveður þennan heim. sgs@mbl.is