Á vaktinni Andrea Jóhannesdóttir í marki Fjölnis í leik liðanna í Egilshöllinni í gær en hún réð úrslitum í vítakeppninni.
Á vaktinni Andrea Jóhannesdóttir í marki Fjölnis í leik liðanna í Egilshöllinni í gær en hún réð úrslitum í vítakeppninni. — Morgunblaðið/Sigurður Ragnarsson
Geysilega óvænt úrslit urðu í öðrum leik Fjölnis og Skautafélags Akureyrar í úrslitarimmunni um sigurinn á Íslandsmóti kvenna í íshokkí í Egilshöllinni í gærkvöldi. Fjölnir vann eftir framlengdan leik og vítakeppni.

Geysilega óvænt úrslit urðu í öðrum leik Fjölnis og Skautafélags Akureyrar í úrslitarimmunni um sigurinn á Íslandsmóti kvenna í íshokkí í Egilshöllinni í gærkvöldi.

Fjölnir vann eftir framlengdan leik og vítakeppni. Jafnaði Fjölnir þar með 1:1 í úrslitunum og munu liðin mætast í oddaleik á Akureyri um titilinn. Fer leikurinn fram annað kvöld og hefst klukkan 21.

Að loknum venjulegum leiktíma var staðan 3:3 en í framlengingunni varði Andrea Jóhannesdóttir öll þrjú víti SA og Laura Murphy skoraði úr víti fyrir Fjölni.

Sveiflurnar á milli leikja voru gífurlegar því SA vann fyrsta leikinn á Akureyri 13:1.

Fjölnir komst þrívegis yfir í leiknum. Laura Murphy skoraði fyrsta markið strax á 3. mínútu eftir stoðsendingu frá Kristínu Ingadóttur en Berglind Leifsdóttir var snögg að jafna eftir stoðsendingu frá Teresu Snorradóttur. Laura Murphy skoraði aftur fyrir Fjölni en Sunna Björgvinsdóttir jafnaði eftir stoðsendingu frá Jónínu Guðbjartsdóttur.

Staðan var 2:2 að loknum fyrsta leikhluta og stóð þannig fram í þriðja leikhluta. Þá kom Sigrún Árnadóttir Fjölni í 3:2 en Hilma Bergsdóttir jafnaði eftir undirbúning Berglindar Leifsdóttur þegar þrettán mínútur voru eftir.

Andrea varði víti frá Kolbrúnu Garðarsdóttur, Sunnu Björgvinsdóttur og Sögu Sigurðardóttur. Birta Þorbjörnsdóttir markvörður SA varði víti frá Kristínu Ingadóttur. sport@mbl.is