Sýningin Fjallamjólk verður opnuð í Listasal Mosfellsbæjar í dag, föstudag. Á henni sýnir Helgi Skj. Friðjónsson myndir af mjólkurhvítum fjöllum sem unnar eru út frá blönduðum miðlum og yfirfærðar á stafrænt form.
Sýningin Fjallamjólk verður opnuð í Listasal Mosfellsbæjar í dag, föstudag. Á henni sýnir Helgi Skj. Friðjónsson myndir af mjólkurhvítum fjöllum sem unnar eru út frá blönduðum miðlum og yfirfærðar á stafrænt form. Helgi segir fjöll samofin vitund sinni og undirvitund. „Þetta eru allt íslensk fjöll, sum betur þekkt en önnur, sem hafa persónulega merkingu fyrir listamanninn. Verkin eru með sterka vísun í íslenska landslagsmálverkið og auk þess má greina áhrif frá mínimalískri japanskri list,“ segir í tilkynningu. Ekki verður haldin sérstök opnun vegna Covid-19. Listasalur Mosfellsbæjar er staðsettur inn af Bókasafni Mosfellsbæjar í Kjarna, Þverholti 2. Opið er kl. 12-18 virka daga og kl. 12-16 á laugardögum.