Barnaheill Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands keypti fyrsta ljósið.
Barnaheill Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands keypti fyrsta ljósið. — Morgunblaðið/Sigurður Unnar
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, keypti fyrsta ljósið í landssöfnun Barnaheilla sem hófst í gær, fimmtudag. Guðni kom í húsnæði Barnaheilla og keypti ljós til að sýna landssöfnuninni og baráttunni móti kynferðisofbeldi gegn börnum samstöðu.

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, keypti fyrsta ljósið í landssöfnun Barnaheilla sem hófst í gær, fimmtudag. Guðni kom í húsnæði Barnaheilla og keypti ljós til að sýna landssöfnuninni og baráttunni móti kynferðisofbeldi gegn börnum samstöðu. Hann fór fögrum orðum um starf Barnaheilla en þetta er í fjórða sinn sem hann kaupir ljós til styrktar þessari mikilvægu baráttu.

Söfnunin í ár ber heitið „Staldraðu við. Með þinni hjálp getum við verndað börn“ og rennur allur ágóði af sölunni í forvarnafræðslu Verndara barna. Ljósið kostar 2.000 krónur og fæst um allt land og í vefverslun Barnaheilla.