Öflugur Þórir Guðmundur Þorbjarnarson klæðist búningi KR á ný.
Öflugur Þórir Guðmundur Þorbjarnarson klæðist búningi KR á ný. — Morgunblaðið/Eggert
Körfuknattleiksmaðurinn Þórir Guðmundur Þorbjarnarson er genginn í raðir uppeldisfélagsins KR að nýju. Spilar hann með liðinu út þetta keppnistímabil.

Körfuknattleiksmaðurinn Þórir Guðmundur Þorbjarnarson er genginn í raðir uppeldisfélagsins KR að nýju. Spilar hann með liðinu út þetta keppnistímabil.

Þórir, sem er 22 ára gamall, hefur undanfarin fjögur ár spilað með Nebraska Cornhuskers, liði Nebraska-Lincoln-háskólans, við góðan orðstír í 1. deild NCAA-háskóladeildarinnar í Bandaríkjunum og er nú útskrifaður frá háskólanum. Ekki þarf að hafa félagaskipti yfir í háskólalið og Þórir er því félagsbundinn KR.