Elvar Már Friðriksson er einn atkvæðamesti leikmaðurinn í efstu deildinni í körfuknattleiknum í Litháen á sínu fyrsta tímabili í deildinni. Eins og fram kom í blaðinu í gær átti Elvar magnaðan leik á miðvikudag og hitti úr öllum skotunum.
Elvar Már Friðriksson er einn atkvæðamesti leikmaðurinn í efstu deildinni í körfuknattleiknum í Litháen á sínu fyrsta tímabili í deildinni. Eins og fram kom í blaðinu í gær átti Elvar magnaðan leik á miðvikudag og hitti úr öllum skotunum. Skoraði hann 33 stig og fékk 51 í framlag.
Elvar er hæstur allra þegar kemur að framlagi í vetur en á bak við hana er heildarframmistaða í leikjum. Elvar er einnig með flestar stoðsendingar og þriðji í stigaskorun að meðaltali. kris@mbl.is