Sáttir Kelechi Iheanacho og Brendan Rodgers fallast í faðma í gær.
Sáttir Kelechi Iheanacho og Brendan Rodgers fallast í faðma í gær. — AFP
Leicester City styrkti stöðu sína í baráttunni um sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta ári þegar liðið tók á móti Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær og vann 2:1 eftir að hafa verið 0:1 undir að loknum fyrri hálfleik.

Wilfried Zaha kom Palace yfir á 12. mínútu en Leicester sneri taflinu við með mörkum frá Timothy Castagne og Kelechi Iheanacho á 50. og 80. mínútu. Leicester er í 3. sæti og hefur nú fjögurra stiga forskot á Chelsea, sjö stig á West Ham og átta á Liverpool.