Steingrímur Birgisson
Steingrímur Birgisson
Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Steingrímur Birgisson, framkvæmdastjóri Bílaleigu Akureyrar, vonast til að staðan verði þokkaleg síðsumars hvað ferðaþjónustuna varðar. „Það fóru að detta inn bókanir um og eftir páska.

Þóroddur Bjarnason

tobj@mbl.is

Steingrímur Birgisson, framkvæmdastjóri Bílaleigu Akureyrar, vonast til að staðan verði þokkaleg síðsumars hvað ferðaþjónustuna varðar. „Það fóru að detta inn bókanir um og eftir páska. Þetta fer hægt og rólega af stað og er í takt við okkar áætlanir. Ég geri ráð fyrir að erlendir ferðamenn verði á bilinu 5-600 þúsund í ár. Þetta ferðamannaár verður álíka og í fyrra. 2020 byrjaði vel og svo var sumarið ágætt. Ég á samt ekki von á að ferðaiðnaðurinn komist á neinn skrið fyrr en á næsta ári.“

Bílaleiga Akureyrar gíraði sig niður á síðasta ári og seldi eldri bíla. „Við keyptum líka 800 bíla á síðasta ári og munum kaupa annað eins í ár. Við ætluðum að kaupa 1.200-1.300 bíla í fyrra en færðum hluta þeirra yfir á þetta ár. Við kaupum samtals 1.600-1.700 bíla, sem er ágætis endurnýjun. Við erum klárlega með nýjasta flotann. Við viljum halda flotanum eins nýjum og mögulegt er,“ segir Steingrímur.

Ferðamenn bóka bíla seinna

Þorsteinn Þorsteinsson, framkvæmdastjóri bílaleigunnar Blue Car Rental, segir í samtali við Morgunblaðið að farið sé að lifna yfir bókunum fyrir sumarið. „Bókanirnar ljúga engu. Við sjáum aðeins komið af bókunum í maí og svo stigvaxandi inn í sumarið,“ segir Þorsteinn.

Hann segir að nú bóki fólk bíla með skemmri fyrirvara en í venjulegu árferði. Ferðamenn taki varfærin skref. Algengt sé að fólk bóki fyrst flug, svo gistingu og þá bílaleigubíl.

Spurður um stöðuna á bílaflotanum og hvernig gangi að liðka bílana fyrir komandi átök segir Þorsteinn að fyrirtækið sé byrjað að hreyfa bílana en það gangi hægar en venja er. Blue Car Rental haldi úti hundruðum bíla en fyrirtækið hafi eins og önnur félög í sömu stöðu verið í lamasessi vegna veirunnar. Talsverð vinna fari í að gera allt klárt enda flotinn búinn að standa óhreyfður lengi með tilheyrandi vandamálum. 12