Tilkynningum sem bárust til barnaverndarnefnda vegna vanrækslu fjölgaði verulega á árinu sem liðið er frá því að kórónuveirufaraldurinn hófst eða um 19,2% frá 1. mars í fyrra til loka febrúarmánaðar sl.

Tilkynningum sem bárust til barnaverndarnefnda vegna vanrækslu fjölgaði verulega á árinu sem liðið er frá því að kórónuveirufaraldurinn hófst eða um 19,2% frá 1. mars í fyrra til loka febrúarmánaðar sl. Þetta kemur fram í nýrri umfjöllun Barnaverndarstofu.

„Slíkt hið sama á við um tilkynningar vegna ofbeldis. Frá 1. mars 2020 hafa borist óvenju margar tilkynningar vegna ofbeldis á mánuði. Því til stuðnings má nefna að meðalfjöldi mánaðarlegra tilkynninga vegna ofbeldis á tímabilinu 1. mars 2020 til 28. febrúar 2021 var 315 tilkynningar, sem er um eða yfir hæsta gildi áranna á undan.

Því er ljóst að talsverð aukning á tilkynningum vegna ofbeldis og vanrækslu gagnvart börnum hefur orðið síðan faraldur hófst,“ segir í frétt á vefsíðu Barnaverndarstofu.

Barnaverndarstofa hefur nú unnið greiningu á tilkynningum til barnaverndarnefnda á tímabili faraldursins til samanburðar við árin á undan. Þar kemur meðal annars fram að tilkynningum vegna ófæddra barna hefur fjölgað.

„Á tímabilinu 1. mars 2020 til 28. febrúar 2020 voru tilkynningarnar 3% fleiri en 12 mánuðina fyrir skilgreint upphaf Covid-19-faraldursins. Meðalaukning slíkra tilkynninga á síðastliðnum fimm árum hefur verið 3,5% og er því sú fjölgun tilkynninga sem sést hefur undanfarna 12 mánuði ekki eins mikil og búast hefði mátt við.

Á 12 mánaða tímabili eftir upphaf Covid-19-faraldursins bárust 68,2% fleiri tilkynningar en 12 mánuðina fyrir faraldurinn,“ segir þar. Bent er á að tilkynningar þar sem óttast er að heilsu eða lífi ófædds barns sé stefnt í hættu eru almennt fáar, 5-10 í mánuði á landsvísu.