Ferðalag Bílaleigurnar bíða komu ferðamanna. Forsvarsmenn eiga von á sígandi lukku inn í sumarið.
Ferðalag Bílaleigurnar bíða komu ferðamanna. Forsvarsmenn eiga von á sígandi lukku inn í sumarið. — Morgunblaðið/RAX
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Baksvið Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Bílaleigur eru enn í varnarstöðu vegna mikils samdráttar í komu erlendra ferðamanna vegna veirunnar sem haft hefur áhrif á eiginfjárstöðuna. Mikið eigið fé liggur í bílaflotanum. Virði bílanna lækkar milli ára og vextir bætast á lán. „Ég held að það verði ekki margar leigur með jákvætt eigið fé eftir rekstur síðasta árs,“ sagði einn viðmælandi blaðsins sem starfar í geiranum. Hann bætti við að rekstrarlega verði bílaleigur margar kannski í kringum núllið en mikill afskriftar- og fjármagnskostnaður muni fara langt með að þurrka út eigið fé margra.

Baksvið

Þóroddur Bjarnason

tobj@mbl.is

Bílaleigur eru enn í varnarstöðu vegna mikils samdráttar í komu erlendra ferðamanna vegna veirunnar sem haft hefur áhrif á eiginfjárstöðuna. Mikið eigið fé liggur í bílaflotanum. Virði bílanna lækkar milli ára og vextir bætast á lán. „Ég held að það verði ekki margar leigur með jákvætt eigið fé eftir rekstur síðasta árs,“ sagði einn viðmælandi blaðsins sem starfar í geiranum. Hann bætti við að rekstrarlega verði bílaleigur margar kannski í kringum núllið en mikill afskriftar- og fjármagnskostnaður muni fara langt með að þurrka út eigið fé margra.

Fulltrúar þeirra bílaleigna sem blaðið ræddi við sögðu margir að líklega færi ferðaiðnaðurinn ekkert af stað fyrir alvöru fyrr en sumarið 2022 þótt bjartsýni væri farið að gæta og bókanir komnar af stað. Menn yrðu a.m.k. ár að vinna sig út úr ástandinu. „Það verður nóg að borga þegar túristinn kemur,“ sagði fulltrúi einnar bílaleigunnar.

Almennt binda menn vonir við bólusetta Breta og Bandaríkjamenn í sumar. Boðað upphaf daglegs flugs bandarísku flugfélaganna Delta og United hingað til lands í maí og júní gefi góðar vonir. Minna er um bókanir frá Evrópu. Almennt eru menn ánægðir með aðgerðir stjórnvalda.

Bókanir ljúga engu

Þorsteinn Þorsteinsson, framkvæmdastjóri bílaleigunnar Blue Car Rental, segir í samtali við Morgunblaðið að farið sé að lifna yfir bókunum fyrir sumarið. „Bókanirnar ljúga engu. Við sjáum aðeins komið af bókunum í maí og svo stigvaxandi inn í sumarið,“ segir Þorsteinn. Hann segir að nú bóki fólk bíla með skemmri fyrirvara en í venjulegu árferði. Ferðamenn taki varfærin skref. Algengt sé að fólk bóki fyrst flug, svo gistingu og þá bílaleigubíl. „Við erum oft aftarlega í þessari röð. Þetta hefur reyndar verið að þróast svona yfir lengri tíma.“

Spurður um stöðuna á bílaflotanum og hvernig gangi að liðka bílana fyrir komandi átök segir Þorsteinn að fyrirtækið sé byrjað að hreyfa bílana en það gangi hægar en venja er. Blue Car Rental haldi úti hundruðum bíla en fyrirtækið hafi eins og önnur félög í sömu stöðu verið í lamasessi vegna veirunnar. Talsverð vinna fari í að gera allt klárt enda flotinn búinn að standa óhreyfður lengi með tilheyrandi vandamálum.

Reynt að verja störfin

Hann segir að Blue Car Rental hafi reynt að verja eins mörg störf og hægt var. Það hafi forðast viðamiklar uppsagnir í gegnum allan faraldurinn en nýtt sér hlutabótaleið yfirvalda. Hún hafi nýst vel. „Við tókum eins lítil skref í þessum efnum og við mögulega gátum og reyndum að halda öllum sem við höfðum einhver verkefni fyrir.“

Hann segir hugmyndina hafa verið að fjárfesta í framtíðinni og halda áfram að stuðla að þróun og heilbrigði fyrirtækisins.

Eins og bílaleigur gera jafnan þá seldi Blue Car Rental talsvert af bílum í faraldrinum. Bæði þá sem þeir þurftu ekki á að halda og einnig var hugsað lengra fram í tímann þar sem spár höfðu gert ráð fyrir færri ferðamönnum allt fram á árið 2023. „Við stillum þetta af miðað við eftirspurn. Við höfum selt líklega þriðjungi meira en venjulega í faraldrinum. Á sama tíma höfum við ekki verið að bæta við okkur nýjum bílum.“

Hann segir að fyrirtækið sé nú að meta hvort það ætli að kaupa nýja bíla fyrir sumarið.

Bjartsýni ríkir hjá Blue Car Rental. Þorsteinn segir að óhætt sé að vera vongóður nú þegar hillir undir lok faraldursins.

Honum finnst leiðinlegt að heyra þegar ferðaþjónustan er teiknuð upp sem „vondi gaurinn“ og að geirinn spili ekki með aðgerðum stjórnvalda. „Maður er alveg jafn mikill Íslendingur og hver annar og vill ekki fá sýkta aðila inn í landið.“

Í eðlilegu árferði samanstendur floti Blue Car af um tvö þúsund bílum. „Við höfum siglt vel í gegnum þetta því við höfum fjárfest mikið í okkar eigin rekstri síðstu tíu ár.“

Gerir ráð fyrri 5-600 þúsund

Steingrímur Birgisson, framkvæmdastjóri Bílaleigu Akureyrar, vonast til að staðan verði þokkaleg síðsumars hvað ferðaþjónustuna varðar. „Það fóru að detta inn bókanir um og eftir páska. Þetta fer hægt og rólega af stað og er í takt við áætlanir okkar. Ég geri ráð fyrir að erlendir ferðamenn verði á bilinu 500-600 þúsund í ár. Þetta ferðamannaár verður álíka og í fyrra. 2020 byrjaði vel og svo var sumarið ágætt. Ég á samt ekki von á að ferðaiðnaðurinn komist á neinn skrið fyrr en á næsta ári.“

Bílaleiga Akureyrar gíraði sig niður á síðasta ári og seldi eldri bíla. „Við keyptum líka 800 bíla á síðasta ári og munum kaupa annað eins í ár. Við ætluðum að kaupa 1.200-1.300 bíla í fyrra en færðum hluta þeirra yfir á þetta ár. Við kaupum samtals 1.600-1.700 bíla, sem er ágætis endurnýjun. Við erum klárlega með nýjasta flotann. Við viljum halda flotanum eins nýjum og mögulegt er,“ segir Steingrímur, en fyrirtækið er atkvæðamikið einnig á innlendum langtímaleigumarkaði.

Bókanir
» Bílar bókaðir með skemmri fyrirvara en í venjulegu árferði.
» Bílaleiga Akureyrar hefur keypt samtals 1.600 nýja bíla.
» Blue Car hefur selt þriðjungi meira af bílum en
venjulega.
» Spáir svipuðum fjölda ferðamanna og kom 2020.