Meistarar Birkir Gunnarsson og Sofia Sóley Jónasdóttir.
Meistarar Birkir Gunnarsson og Sofia Sóley Jónasdóttir. — Ljósmynd/TSÍ
Íslandsmótið í tennis innanhúss fór fram um helgina í Tennishöllinni í Kópavogi. Íslandsmeistari í einliðaleik í meistaraflokki karla varð Birkir Gunnarsson og Íslandsmeistari í einliðaleik í meistaraflokki kvenna varð Sofia Sóley Jónasdóttir.
Íslandsmótið í tennis innanhúss fór fram um helgina í Tennishöllinni í Kópavogi. Íslandsmeistari í einliðaleik í meistaraflokki karla varð Birkir Gunnarsson og Íslandsmeistari í einliðaleik í meistaraflokki kvenna varð Sofia Sóley Jónasdóttir. Birkir vann Raj K. Bonifacius í úrslitaleiknum í karlaflokki og Sofia sigraði Önnu Soffíu Grönholm í úrslitaleiknum í kvennaflokki. Keppendur á mótinu voru 108 á aldrinum 5-60 ára í 22 mismunandi keppnisflokkum í einliða-, tvíliða og tvenndarleik.