[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Fallbarátta Víðir Sigurðsson vs@mbl.is HK og ÍA halda sætum sínum í efstu deild eftir botnbaráttu við nýliðana tvo, Keflavík og Leikni úr Reykjavík. Þetta er niðurstaðan í spá íþróttadeildar Morgunblaðsins og mbl.

Fallbarátta

Víðir Sigurðsson

vs@mbl.is

HK og ÍA halda sætum sínum í efstu deild eftir botnbaráttu við nýliðana tvo, Keflavík og Leikni úr Reykjavík. Þetta er niðurstaðan í spá íþróttadeildar Morgunblaðsins og mbl.is fyrir Pepsi Max-deild karla 2021 en samkvæmt henni enda þessi fjögur lið í fjórum neðstu sætunum á komandi keppnistímabili.

Keppni í deildinni hefst á föstudagskvöldið kemur með leik Vals og ÍA á Hlíðarenda og hinir fimm leikirnir í umferðinni eru leiknir á laugardag og sunnudag. Mjög þétt dagskrá er framundan því sjö umferðum á að vera lokið fyrir 1. júní og liðin spila því um það bil fjórða hvern dag næstu vikurnar.

Skoðum betur þessi fjögur lið sem spáð er erfiðu sumri.

Valgeir mikilvægur fyrir HK

HK hefur endað í níunda sæti tvö síðustu ár og Kópavogsliðinu er spáð svipuðu gengi á þessu tímabili. Breytingar á hópnum eru litlar en hægri bakvörðurinn Birkir Valur Jónsson er kominn aftur eftir lánsdvöl í Slóvakíu og Valgeir Valgeirsson verður áfram með HK eftir að hafa verið í láni hjá Brentford í vetur. Þrátt fyrir ungan aldur er Valgeir HK-liðinu afar dýrmætur. Óvíst var hvort hann yrði með í ár og góðar fréttir fyrir HK-inga að endurheimta hann.

Þá er Örvar Eggertsson kominn frá Fjölni og lánsdvöl Martins Rauschenbergs frá Stjörnunni hefur verið framlengd en hann kom sterkur inn í vörn HK seinni hluta síðasta tímabils.

Bakvörðurinn reyndi Hörður Árnason er hættur og Þórður Þ. Þórðarson er farinn heim á Skagann.

Brynjar Björn Gunnarsson hefur byggt liðið upp á undanförnum árum og það mætir til leiks með meiri reynslu í farteskinu ásamt því sem breiddin í leikmannahópnum hefur aukist smám saman. Hvort það nægir til að halda liðinu frá vandræðum í deildinni á svo eftir að koma í ljós.

Getur ÍA fyllt í skörðin?

Skagamenn hafa ekki verið í efri hluta deildarinnar frá árinu 2012 og þeim er spáð áframhaldandi dvöl í neðri hlutanum. Jóhannes Karl Guðjónsson mætir til leiks með lið sem er árinu eldra hvað reynsluna varðar en margir efnilegir leikmenn hafa komið inn í liðið síðustu tvö ár.

Stærsta spurningin er hvort skörð Tryggva Hrafns Haraldssonar og Stefáns Teits Þórðarsonar verði fyllt. Þeir voru yfirburðamenn hjá ÍA í fyrra og skoruðu rúman helming marka liðsins. Auk þeirra er miðvörðurinn Marcus Johansson horfinn á braut.

Í staðinn eru komnir Alex Davey, 26 ára skoskur varnarmaður sem ólst upp hjá Chelsea, finnski bakvörðurinn Elias Tamburini sem hefur leikið með Grindavík undanfarin ár, framherjinn Hákon Ingi Jónsson frá Fylki, bakvörðurinn Þórður Þ. Þórðarson sem kemur heim eftir dvöl hjá HK og ÍA, og þá er miðjumaðurinn reyndi Arnar Már Guðjónsson með á ný eftir að hafa misst af síðasta tímabili vegna meiðsla.

Skagamenn spiluðu opinn og skemmtilegan fótbolta í fyrra og langflest mörk voru skoruð í þeirra leikjum. Þeir voru næstmarkahæsta lið deildarinnar þó 8. sæti hefði verið niðurstaðan. En þeir gætu þurft að bæta hjá sér varnarleikinn til þess að komast af hættusvæðinu.

Hvað gerir Joey Gibbs?

Keflvíkingar unnu ekki leik síðast þegar þeir léku í efstu deild, árið 2018, en allt bendir til þess að þeir mæti töluvert sterkari til leiks að þessu sinni.

Eysteinn Hauksson og Sigurður Ragnar Eyjólfsson þjálfa liðið áfram. Keflavík vann 1. deildina í fyrra, var með 43 stig en Leiknir og Fram voru með 42 þegar mótinu var hætt í október. Þó litlu hafi munað átti Keflavík leik til góða, hafði aðeins tapað tveimur leikjum og var með 57 mörk í 19 leikjum, eða þrjú að meðaltali í leik.

Keflvíkingar tefla fram öllum lykilmönnum sínum frá síðasta tímabili og hafa bætt fimm leikmönnum í hópinn. Miðvörðurinn Ísak Óli Ólafsson snýr aftur heim sem lánsmaður frá SönderjyskE og styrkir örugglega varnarleik liðsins. Bakvörðurinn Ástbjörn Þórðarson, sem lék með Gróttu í fyrra, kemur frá KR, og þrír nýir erlendir leikmenn bætast við. Miðjumaðurinn Marley Blair, 21 árs Englendingur sem ólst upp hjá Liverpool og Burnley, bandaríski framherjinn Christian Volesky sem hefur leikið um árabil í B-deildinni í heimalandi sínu og ástralski framherjinn Oliver Kelaart sem lék með Kormáki/Hvöt í 4. deildinni síðasta sumar.

Joey Gibbs, 28 ára Ástrali, er afar spennandi leikmaður hjá Keflavík. Hann varð langmarkahæstur í 1. deild í fyrra með 21 mark í 19 leikjum og sýndi styrk sinn með því að skora þrennu gegn Víkingi í átta liða úrslitum Lengjubikarsins í mars.

Yfirvinna þeir reynsluleysið?

Það kemur engum á óvart, og sennilega síst Leiknismönnum sjálfum, að nýliðunum úr Breiðholtinu skuli vera spáð neðsta sætinu.

Þeir mæta til leiks með reynslulítinn hóp, þegar horft er til spilamennsku í efstu deild. Leiknisliðið minnir dálítið á Gróttu í fyrra að því leyti að enginn leikmannanna hefur náð að spila 20 leiki í efstu deild á ferlinum. Þá er þjálfarinn Sigurður Heiðar Höskuldsson sá reynsluminnsti í deildinni. Á móti kemur að Leiknir er með samstilltan hóp og öfluga félagsstemningu sem mun án efa hjálpa þeim talsvert.

Brynjar Hlöðversson verður væntanlega í stóru hlutverki. Hann lék með Leikni í deildinni árið 2015 og hefur reynslu af því að vinna meistaratitil í Færeyjum. Fyrirliðinn ungi Sævar Atli Magnússon er þeirra aðalmarkaskorari og áhugavert verður að sjá hann glíma við varnarmenn deildarinnar. Vuk Oskar Dimitrijevic fór í FH og þar missti Leiknir lykilmann.

En mikið mun ráðast af styrk erlendu leikmannanna. Leiknir fór óvenjulega leið með því að ná í Kólumbíumann, Andrés Manga Escobar, og Venesúelamann, Octavio Páez, ásamt því að sænski miðjumaðurinn Emil Berger sem lék með Fylki fyrir átta árum er kominn í Breiðholtið.

Spá Morgunblaðsins 2021

Fimmtán íþróttafréttamenn og leiklýsendur Morgunblaðsins og mbl.is spáðu fyrir um röð liðanna í Pepsi Max-deild karla 2021.

9. sæti: HK með 57 stig. Besta spá 6. sæti, versta spá 11. sæti.

10. sæti: ÍA með 48 stig. Besta spá 7. sæti, versta spá 12. sæti.

11. sæti: Keflavík með 33 stig. Besta spá 8. sæti, versta spá 12. sæti.

12. sæti: Leiknir R. með 19 stig. Besta spá 10. sæti, versta spá 12. sæti.