Þau fyrstu Emerald Fennell hlaut sín fyrstu Óskarsverðlaun fyrir besta frumsamda handrit, að kvikmyndinni Promising Young Woman.
Þau fyrstu Emerald Fennell hlaut sín fyrstu Óskarsverðlaun fyrir besta frumsamda handrit, að kvikmyndinni Promising Young Woman.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Nomadland , kvikmynd kínverska leikstjórans Chloé Zhao, stóð uppi sem sigurvegari Óskarsverðlaunanna sem veitt voru aðfaranótt mánudags í Los Angeles.
Nomadland , kvikmynd kínverska leikstjórans Chloé Zhao, stóð uppi sem sigurvegari Óskarsverðlaunanna sem veitt voru aðfaranótt mánudags í Los Angeles. Verðlaunin eru veitt út frá kosningu nefndarmanna Bandarísku kvikmyndaakademíunnar, Academy of Motion Picture Arts, sem eru yfir níu þúsund talsins. Nomadland hlaut þrenn verðlaun: fyrir bestu kvikmynd, leikstjórn og aðalleikkonu og varð Zhao önnur konan í sögu verðlaunanna til að hljóta leikstjórnarverðlaunin og einnig sú fyrsta asíska. Verðlaunin hafa nú verið veitt 93 sinnum og hefur því heldur betur hallað á kvenleikstjóra í sögu þeirra.

Tveir Íslendingar voru meðal tilnefndra, Eggert Ketilsson sem var listrænn stjórnandi við gerð leikmyndar Tenet og Gísli Darri Ólafsson sem skrifaði handrit að og leikstýrði stuttu teiknimyndinni Já-fólkið . Tenet var tilnefnd fyrir bestu leikmynd en verðlaunin hlaut Mank og ein til viðbótar, fyrir bestu kvikmyndatöku. Verðlaun sem besta stutta teiknimyndin hlaut If Anything Happens .

Íslandstengingar voru fleiri því lagið „Húsavík“ úr Eurovision-grínmynd Wills Ferrells var tilnefnt sem besta frumsamda lagið en laut í lægra haldi fyrir lagi tónlistarkonunnar H.E.R., „Fight for You“, úr Judas and the Black Messiah . Húsavík fékk engu að síður frábæra kynningu með fallegu myndbandi við lagið sem tekið var í bænum með söngkonunni Molly Sandén og kór íslenskra stúlkna í lopapeysum. Stóðu þær sig eins og hetjur og hefur eflaust mörgum Óskars-áhorfendum vöknað um augu yfir náttúru- og æskufegurð Húsavíkur. Og ekki var söngurinn síðri.

Drykkja sú besta

Af leikurum hlutu verðlaun fyrir aðalhlutverk hin bandaríska Frances McDormand fyrir Nomadland og hinn velski Anthony Hopkins fyrir The Father . Hopkins er orðinn 83 ára og sló aldursmet í þessum verðlaunaflokki. Í þakkarræðu hvatti McDormand alla til að fara í bíó og sjá hinar tilnefndu kvikmyndir en Hopkins var fjarri góðu gamni og tókst ekki heldur að hafa uppi á honum til að tilkynna honum um verðlaunin.

Fyrir aukahlutverk hlutu verðlaun suðurkóreska leikkonan Yuh-Jung Youn fyrir Minari og Daniel Kaluuya fyrir Judas and the Black Messiah en Youn er fyrsta kóreska konan sem hlýtur þessi verðlaun. Þótti mörgum kvikmyndarýnum og -blaðamönnum skrítið að hlutverk Kaluuya væri skilgreint sem aukahlutverk þar sem hann leikur eina af aðalpersónum myndarinnar en skýringin er væntanlega sú að framleiðendum hefur þótt hann eiga meiri möguleika á verðlaunum ef svo væri. Virðist það hafa verið rétt ágiskun.

Frændur okkar Danir hömpuðu verðlaunum fyrir bestu alþjóðlegu myndina en þau verðlaun hétu áður besta erlenda kvikmyndin. Druk , eða Drykkja , kvikmynd Thomasar Vinterbergs, varð fyrir valinu og í þakkarræðu tileinkaði hann verðlaunin dóttur sinni sem lést fjórum dögum eftir að tökur hófust, aðeins 19 ára.

My Octopus Teacher hlaut verðlaun sem besta heimildarmyndin og Soul fyrir bestu teiknimynd í fullri lengd.

Meiri fjölbreytni

Óskarsverðlaunin hafa hin síðustu ár verið harðlega gagnrýnd fyrir einsleitni þegar kemur að tilnefningum og þá bæði hvað varðar kyn og kynþætti tilnefndra. Hefur þótt halla mjög á þeldökka leikara og konur en verðlaunin í ár voru skref í rétta átt, eins og bent er á í umfjöllun The New York Times . Sjötíu konur voru tilnefndar í 23 verðlaunaflokkum og níu þeldökkar manneskjur eða af öðrum litarhætti en hvítum. Í annað sinn í sögu verðlaunanna voru tvær þeldökkar konur tilnefndar sem besta leikkonan, þ.e. Viola Davis og Andra Day. Og Hopkins var ekki einn um að slá aldursmet því Ann Roth hlaut verðlaun fyrir bestu búningahönnun. Hún er 89 ára og elsta konan sem hlotið hefur Óskarsverðlaun í 93 ára sögu þeirra.

Trent Reznor og Atticus Ross hlautu verðlaunin fyrir bestu frumsömdu tónlistina, við teiknimyndina Soul og í handritaflokki hlutu verðlaun Emereld Fennell fyrir það besta frumsamda, fyrir kvikmyndina Promising Young Woman og Christopher Hamton og Florian Zeller fyrir handrit skrifað upp úr áður útgefnu efni, fyrir Sound of Metal .

Heildarlista verðlaunahafa má finna víða á netinu og þá m.a. á vefsíðu verðlaunanna, oscars.com.

helgisnaer@mbl.is