— Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Margir nýttu tækifærið og kíktu út í veðurblíðuna í gær. Ljóst er að styttast fer í sumarið og voru þessi ungmenni ekki lengi að svara kallinu og skella sér út í góða veðrið.
Margir nýttu tækifærið og kíktu út í veðurblíðuna í gær. Ljóst er að styttast fer í sumarið og voru þessi ungmenni ekki lengi að svara kallinu og skella sér út í góða veðrið. Veðurspáin lítur vel út á höfuðborgarsvæðinu í dag en spáð er átta gráða hita og sól í Reykjavík. Áfram verður léttskýjað á morgun en skýjað með köflum vestantil og lítilsháttar súld síðdegis.