Útmeldaður. V-NS
Norður | |
♠K652 | |
♥752 | |
♦G863 | |
♣65 |
Vestur | Austur |
♠ÁD8 | ♠10 |
♥G106 | ♥8 |
♦754 | ♦ÁKD1092 |
♣ÁD92 | ♣KG1087 |
Suður | |
♠G9743 | |
♥ÁKD943 | |
♦-- | |
♣43 |
Suður spilar 4♠ doblaða.
Átti Dennis Bilde fyrir annarri sögn eða hafði hann þegar sagt frá öllu sínu? Hann sat í austur og svaraði Standard-laufopnun Agustin Madala rólega með 1♦. Michal Klukowski í suður kom inn á 1♥ og sú sögn gekk óhreyfð til Bilde. Hvað nú?
Dobl hefði verið til úttektar, en Bilde vildi ekki sitja í vörninni í dobluðum örbút og krafði með 2♥. Klukowski skaut inn 2♠ og Jacek Kalita í norður hækkaði í 3♠ eftir pass frá Madala. Bilde sagði 4♣, Klukowski 4♠ og Madala doblaði – pass og pass til Bilde. Stóra stundin.
Bilde leit svo á að hann hefði lýst öllu sínu og passaði. Út kom tígull, sem Klukowski trompaði og spilaði spaða á kóng. Svo hjarta fjórum sinnum og henti laufi úr borði. Tíu slagir.
Á hinu borðinu spiluðu AV 6♦ og unnu. Sveifla upp á 17 stig.