Sigursveit Blóðmör sigraði í Músíktilraunum 2019 með blöndu af pönki og þungarokki.
Sigursveit Blóðmör sigraði í Músíktilraunum 2019 með blöndu af pönki og þungarokki. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Árni Matthíasson arnim@mbl.is Tónlistarhátíðin Músíktilraunir verður haldin í 38. sinn nú um helgina, en þá keppa 45 hljómsveitir víða að af landinu um þátttökurétt í úrslitum tilraunanna sem haldin verða um næstu helgi.

Árni Matthíasson

arnim@mbl.is

Tónlistarhátíðin Músíktilraunir verður haldin í 38. sinn nú um helgina, en þá keppa 45 hljómsveitir víða að af landinu um þátttökurétt í úrslitum tilraunanna sem haldin verða um næstu helgi. Keppnin verður haldin í Hörpu, líkt og undanfarin ár, og vegna Covid-faraldursins verður takmarkaður fjöldi miða í boði.

Músíktilraunir voru fyrst haldnar í nóvember 1982, en þá stóðu Tónabær, sem var tónleikasalur og félagsmiðstöð í Skaftahlíð, og SATT, samtök tónlistarmanna, fyrir fjögurra kvölda hljómsveitakeppni sem lyktaði með maraþontónleikum. Eins og getið er verða tilraunirnar í ár þær 38. í sögunni, en keppni féll niður vegna verkfalls kennara 1984 og svo á síðasta ári vegna Covid-19. Að því sögðu má geta þess að flestar sveitanna sem skráðu sig til leiks í fyrra verða með í ár, margar þó með ýmsum mannabreytingum.

Fjögur undankvöld

Undankvöld tilraunanna verða fjögur. Í dag keppa hljómsveitirnar Continue, Demo, Fógeti, Grafnár, Keikó, Konráð Óskar, Little Menace, Rós, Salamandra og Tær. Keppnin hefst kl. 16 til að koma til móts við þá sem ætla í Evróvisjónpartí, en hin undankvöldin hefst keppni kl. 19.30.

Á morgun, sunnudag, kl. 19.30 keppa 7.9.13, Aría, Buttercups, Krownest, LÍMBANDIÐ, Oddweird, Píparkorn, Rúnar Breki, Sleem, The Parasols og Tötrar.

Mánudagskvöldið eru það Atli, Ballados, Cosmic Onion, Dóra og Döðlurnar, E.C., Dopamine Machine, Eilíf sjálfsfróun, Karma Brigade, Lamine Flow, Ólafur Kram, YoYo69 og Ælupestó sem koma fram.

Síðasta undanúrslitakvöldið verður svo á þriðjudagskvöld, en þá keppa Benedikt, El Royale, Fjórir sveitastrákar, Ingo is an artist, Jengah, Kisimja, Merkúr, Mersier, Ólafur, Sindri og Andri, Skullcrusher og Æsa.

Verðlaunafjöld

Verðlaun á Músíktilraunum eru veitt fyrir 1., 2. og 3. sæti og einnig veitt verðlaun fyrir hljóðfæraslátt, söng og íslenska texta og „rafheili“ Músíktilrauna fær viðurkenningu. Hljómsveit fólksins er valin í símakosningu. Hljómsveitirnar sem komast í úrslit eiga þess kost að taka þátt í svonefndum Hitakassa, en það er nýliðanámskeið í hljómsveitaiðju sem haldið er í samvinnu við Útón og Tónlistarborgina Reykjavík.

Á hverju undankvöldi velur salur eina hljómsveit áfram í úrslit og dómnefnd eina, en dómnefnd getur svo bætt í úrslit hljómsveitum úr undankeppninni sýnist henni svo. Á úrslitakvöldi velur dómnefnd vinningssveitir.

Dómnefndina 2021 skipa ofanritaður og Arnar Eggert Thoroddsen, Hildur Guðný Þórhallsdóttir, Hrafnkell Örn Guðjónsson, Kristján Kristjánsson, Ragnheiður Eiríksdóttir og Steinunn Sigþrúðardóttir Jónsdóttir.

Sigurvegarar og stjörnur

Sigursveitir Músíktilrauna hafa margar náð langt, sumar heimshylli, til að mynda Greifarnir, Stuðkompaníið, Infusoria, sem breyttist í Sororicide, Kolrassa Krókríðandi, Maus, Botnleðja, Mínus, 110 Rottweiler hundar, sem urðu síðar XXX Rottweiler hundar, Mammút, Jakobínarína, Agent Fresco, Bróðir Svartúlfs, sem varð Úlfur Úlfur, Of Monsters and Men og Vök.

Einnig hafa liðsmenn tilraunahljómsveita vakið athygli einir síns liðs eða með öðrum hljómsveitum og nægir þar að nefna Jón Þór Birgisson, Jónsa í Sigur Rós, sem keppti tvisvar með hljómsveitinni Bee Spiders, Auði, eða Auðun Lúthersson, sem keppti ýmist sem söngvari, gítarleikari, trommuleikari eða tölvuþór með Sound of Seclusion 2009, með 3000 miles & above árið 2010, „Hæ Vektor Hekltor!“ 2011, með Tuttugu 2014 og með C A L I C U T 2015. Annað þekkt nafn úr Músíktilraunum er Daði Freyr Pétursson, sem sigraði með RetRoBot 2012 og var þá líka valinn rafheili tilraunanna, en er nú þekktastur sem Gagnamagnsforingi.