Serjozhja spyr Tony hvar í ósköpunum Gulli geti eiginlega verið.
Serjozhja spyr Tony hvar í ósköpunum Gulli geti eiginlega verið. — AFP
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Vikan var undirlögð af tveimur heimssögulegum viðburðum þar sem Íslendingar komu við sögu: ársfundi Norðurskautsráðsins og ársfundi Evrósjón. Mátti vart á milli sjá á hvorum viðburðinum Íslendingar höfðu meiri áhuga.

Vikan var undirlögð af tveimur heimssögulegum viðburðum þar sem Íslendingar komu við sögu: ársfundi Norðurskautsráðsins og ársfundi Evrósjón. Mátti vart á milli sjá á hvorum viðburðinum Íslendingar höfðu meiri áhuga.

Áhuginn á söngvakeppni Evrósjón breyttist hins vegar í ótta um heilsufar íslenska hópsins og sigurlíkur eftir að einn úr bakvarðasveit Daða og gagnamagnsins greindist með kórónuveiru. Þrátt fyrir að þjóðin væri fullvissuð um að lítil nánd væri milli forsöngvarans Daða Freys Péturssonar og Íslendinga að tjaldabaki voru áhyggjur landsmanna nánast áþreifanlegar í húminu.

Því ótengt var fimmta sóttkvíarhótelið tekið í gagnið heima á gamla góða Íslandi. Komufarþegum til landsins hefur fjölgað jafnt og þétt undanfarna daga.

Hins vegar var sérstökum sóttvarnatakmörkunum á Skagfirska efnahagssvæðinu aflétt eftir að hópsmit kom þar upp í fyrri viku.

Kvartað var undan því að lokun flugbrautar á Reykjavíkurflugvelli skapaði óþarfa hættu, en á dögunum skemmdist flugvél, sem þurfti að lenda í hliðarvindi í stað þess að nota hina lokuðu braut, sem væri nothæf ef ekki væri búið að hrúga jarðefnaúrgangi á hana.

Reykjavíkurborg svaraði ekki heldur ákalli íbúa við Haðarstíg , sem kvartað hafa undan brunavörnum við götuna. Þrátt fyrir að tvisvar hafi kviknað í við þennan þéttbýla stíg í Þingholtunum bólar ekkert á viðbrögðum úr ráðhúsinu.

Flugfélagið Play fékk flugrekstrarleyfi og undirbjó opnun á bókunum í upphafi vikunnar.

Sjálfstæðismenn í Reykjavík hófu prókjörsbaráttu sína, en þar eru 13 um hituna, langflestir atvinnustjórnmálamenn á svipuðu reki. Fólk um allt land fann smjörþefinn af því þegar einn frambjóðendanna fór að hringja út atkvæðin af flokksskrá úr síðasta prófkjöri, sem fram fór fyrir fimm árum, en þau búa ekki öll lengur í bænum.

·

Anthony „Call me Tony “ Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kom til Íslands á mánudagskvöld til þess að sækja ársfund Norðurskautsráðsins, en áður hitti hann ýmsa íslenska ráðamenn, t.d. bæði Kötu og Gulla.

Vonir í ferðaþjónustu um bærilegt sumar hafa glæðst verulega, en bókunum hefur fjölgað svo mikið að gistinýting í júlí og ágúst kann að reynast nærri hámarki. Þar að baki eru einkum efnaðir Bandaríkjamenn í leit að ævintýrum, enda fáar kröfur gerðar til komufarþega aðrar en að þeir hafi bæði bólusetningarkort og platínukort handbær.

Íslendingar eru þó ekki einir um hituna, því hvarvetna í Evrópu hafa ferðamannalönd sett sig í stellingar til þess að bítast um ferðaþyrsta og bólusetta. Þar er Ísland þó í óvenju hagstæðri stöðu.

Ákveðið var að hækka varnargarða við gosstöðvarnar í Geldingadölum . Landvernd var full efasemda og taldi þá valda náttúruraski. Hins vegar kærir hún sig kollótta um þótt landið allt fari undir hraun og ekkert rask af því.

Sögð var frétt af því á þriðjudag að ekki hefðu fleiri í íslenska Evrósjónhópnum reynst smitaðir af kórónuveirunni.

Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins kynnti að hún vildi setja lögbann á netvínsölu til Íslands, en greindi þó ekki frá því með hvaða hætti það yrði gert. Alþjóðlegar netvínsölur á borð við Amazon, Majestic og wine.com bíða vafalaust í ofvæni og ofsakæti.

Af verðbréfamarkaði fyrir fólk sem kann ekki að reikna bárust þær fregnir að hæsti vinningur Víkingalottósins myndi lækka, en ætti hins vegar að ganga oftar út. Húsið heldur áfram að vinna. Alltaf.

·

Gulli hitti Tony í Hörpu og fór vel á með þeim vinum, sem slógu þar á létta strengi.

Neytendasamtökin undirbúa hópmálsóknir á hendum viðskiptabönkunum, en þau telja að skilmálar flestra lána til almennings með breytilegum vöxtum stangist á við lög. Vöxtum megi breyta með svo matskenndum hætti að almennir lántakendur hafi engar forsendur til þess að meta fjármagnskostnaðinn.

Rekstrarleyfi til laxeldis í Ísafjarðardjúpi eru í uppnámi vegna ágreinings um það í hvaða röð skuli taka matsskýrslur vegna umhverfismats til athugunar.

Sett voru upp skilti við leiðina að gosinu í Geldingadölum um að greiða þyrfti fyrir að leggja bílum þar á stæðinu, enda er eldfjallið nýja á landi í einkaeigu.

Frumvarp Óla Björns Kárasonar og Brynjars Níelssonar um að Ríkisútvarpið yrði tekið af auglýsingamarkaði og hætti jafnframt kostun dagskrárliða var tekið á dagskrá á Alþingis.

Boris Johnson varaði Breta við því að ferðast annað en til „grænna landa“ í sumarleyfinu. Ísland er eitt tólf landa á þeim lista og má því vona að orð forsætisráðherrans hafi einhver áhrif. Íslenskir ferðafrömuður telja hins vegar að Bretar geymi sér Íslandsferð til vetrarins en fari nú að sleikja sólina í Portúgal.

·

Tony og Serjozhja hittust í Hörpu, en ekki er ljóst nákvæmlega hvað utanríkisráðherrum Bandaríkjanna og Rússlands fór á milli á fundinum, sem stóð lengur en ætlað var.

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) hafði uppi stórkarlalegar yfirlýsingar um hið nýja flugfélag Play og hvatti landslýð allan til þess að sniðganga það á frekar hæpnum forsendum. Eftir því sem næst verður komist er Drífa Snædal, forseti ASÍ, ekki mönnum sinnandi yfir því að Play hafi ráðið til sín fólk í verkalýðsfélagi sem ekki borgar ASÍ félagsgjöld. Samkeppniseftirlitið hlýtur að skakka leikinn.

Ekki varð annað séð en að ferðalangar að gosstöðvunum í Geldingadal tækju bílastæðagjaldi landeigenda vel. Eftir sem áður er fólki frjálst að ganga að gosinu.

Ekkert óvænt gerðist þegar listar framsóknarmanna og vinstri grænna í Reykjavík voru kynntir. Þá leiða ráðherrarnir Ásmundur Einar Daðason, Lilja Alfreðsdóttir, Katrín Jakobsdóttir og Svandís Svavarsdóttir.

Á daginn kom að 57% starfsmanna Landspítalans eru í hlutastarfi.

Jónína Michaelsdóttir , rithöfundur, blaðamaður og aðstoðarmaður Þorsteins Pálssonar forsætisráðherra, lést 78 ára að aldri.

·

Upptaka af flutningi Daða og gagnamagnsins fleytti Íslandi á úrslitakvöld söngvakeppni Evrósjón . Sú menningarhátíð ómúsíkalsks fólks fer fram í kvöld og er sjónvarpað á rás Ríkissjónvarpsins.

Birgir Jónsson , forstjóri flugfélagsins Play, gaf lítið fyrir rök og talnafimi ASÍ. Félagið henti hins vegar nafn forseta ASÍ á lofti og auglýsti um allar trissur „Drífa sig út!“

Fram kom að fulltrúi launþega hefði gagnrýnt kaup lífeyrissjóðsins Birtu í flugfélaginu Play og virðist sem verkalýðshreyfingin setji mikla pressu á Birtu til þess að losa það fé.

Formaður Skipulagsráðs Reykjavíkurborgar minnti á að borgarskipulagið gerði ráð fyrir að Reykjavíkurflugvöllur færi úr Vatnsmýri í fyllingu tímans. Því væri eðlilegt að björgunarþyrlusveit Landhelgisgæslunnar snáfaði með honum í Hvassahraun eða eitthvað.

Sorpa , sem ekki annar vel að tæma þær tunnur sem nú þegar standa við heimili fólks á höfuðborgarsvæðinu, skoðar nú að taka upp fjögurra tunnu kerfi við öll heimili.

Eigandi ónýts húss við Þórsgötu hefur frá árinu 2004 leitað leyfis til þess að rífa húsið og byggja annað. Borginni liggur hins vegar ekkert á með það, en hústökumaður hefur hreiðrað um sig í kofanum á meðan.

mathöll verður byggð upp í Kringlunni, svo fæðuöryggi landsmanna er borgið í bili