Birna Gréta Halldórsdóttir fæddist 3. nóvember 1947. Hún lést 28. apríl 2021.
Birna var jarðsungin 14. maí 2021.
Ég kynntist Birnu fyrir tæpum tuttugu árum þegar ég byrjaði að vinna á Heilbrigðisstofnuninni. Við unnum saman í nokkur ár og voru það forréttindi fyrir mig, blauta á bak við eyrun, að fá að læra af henni. Hún var skarpgreind, umhyggjusöm, ákveðin og hreinskilin og var bæði lærdómsríkt og gaman að vinna með henni. Í gegnum sameiginlegt áhugamál, ástríðu eða áráttu, allt eftir því hvernig á það er litið, tókst með okkur mikill vinskapur en hún var einstaklega mikill kattavinur. Við áttum yfirleitt svipaðan fjölda af köttum og við eyddum ófáum stundum yfir kaffibolla og bakkelsi í að ræða um þessa hnoðra okkar. Fyrir um áratug síðan tók hún að sér tvær kisur fyrir mig og gaf þeim yndislegt heimili í sveitinni sem var stútfullt af ást, rjóma og rækjum. Það var alltaf gaman að ræða um menn og málefni við Birnu en hún var mikill húmoristi með sterkar og ákveðnar skoðanir á stjórnmálum og fótbolta og fór ekki á milli mála hvar hjarta hennar lá í þeim efnum. Hún var einstök manneskja sem fór sína eigin leið í lífinu og er ég afar þakklát fyrir vináttu og samfylgd í gegnum árin.
Hvíl í friði elsku Birna.
María Reynisdóttir.