Píanisti Sunna Gunnlaugsdóttir.
Píanisti Sunna Gunnlaugsdóttir.
Djasspíanistinn Sunna Gunnlaugsdóttir er Bæjarlistamaður Kópavogs 2021. Valið var tilkynnt í Salnum í gær við hátíðlega athöfn.

Djasspíanistinn Sunna Gunnlaugsdóttir er Bæjarlistamaður Kópavogs 2021. Valið var tilkynnt í Salnum í gær við hátíðlega athöfn. Í tilkynningu frá bænum kemur fram að tilgangur útnefningarinnar sé að „varpa ljósi á þá fjölmörgu og hæfileikaríku listamenn sem búa í Kópavogi og hafa átt þátt í að auðga menningarlíf bæjarins í gegnum árin. Það er meðal annars hlutverk bæjarlistamanns að deila listsköpun sinni með bæjarbúum það ár sem hann er valinn.“

Sunna hefur margoft komið fram í Salnum í Kópavogi og er stofnandi tónlistarhátíðarinnar Jazz í Salnum. Hún nam djasspíanóleik við Tónlistarskóla FÍH, William Paterson College í New Jersey og Pratt University í New York þaðan sem hún lauk meistaraprófi. Sunna sat í stjórn Jazzhátíðar Reykjavíkur í fimm ár og situr í stjórn Europe Jazz Network. Hún hefur haldið tónleika um víða veröld og komið fram á mörgum af helstu djasstónlistarhátíðum heims. Hún hefur sent frá sér 11 geisladiska sem hafa hlotið frábærar viðtökur hér heima og erlendis og náð inn í efstu sæti vinsældalista á djassútvarpsstöðvum í Bandaríkjunum og Kanada. Sunna hefur hlotið fjölda tilnefninga til Íslensku tónlistarverðlaunanna og var valin flytjandi ársins 2015 og 2019. Tríó hennar, með Þorgrími Jónssyni á kontrabassa og Scott McLemore á trommur sem hefur notið mikillar hylli, var Tónlistarhópur Reykjavíkur 2013,“ segir í tilkynningu.

„Það er varla hægt að koma í orð hversu mikil hvatning þessi viðurkenning frá Kópavogsbæ er á þessum undarlegu tímum. Það er skrítið að vera listamaður á tíma þegar ekkert má og oft erfitt að finna innblásturinn til að skella sér í skapandi verkefni. Ég fann fyrir ótrúlegu þakklæti við þessar fréttir og það er ómetanlegt að finna það að aðrir hafi kunnað að meta mitt framlag undanfarin ár. Ég hlakka mjög til að starfa að nýju verkefni sérstaklega hannað fyrir Kópavogsbúa,“ er haft eftir Sunnu í tilkynningunni.