Nafnlausi dalur Hraun er farið að þrýsta á varnargarða ofan við Nátthaga.
Nafnlausi dalur Hraun er farið að þrýsta á varnargarða ofan við Nátthaga. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Varnargarðar geta hamlað hraunstraumi eins og reynslan úr eldgosinu í Heimaey 1973 sýndi, að sögn Ármanns Höskuldssonar, eldfjallafræðings og rannsóknaprófessors við HÍ.

Guðni Einarsson

gudni@mbl.is

Varnargarðar geta hamlað hraunstraumi eins og reynslan úr eldgosinu í Heimaey 1973 sýndi, að sögn Ármanns Höskuldssonar, eldfjallafræðings og rannsóknaprófessors við HÍ. Hann hefur ásamt fleirum unnið að samantekt um virkni varnargarða gegn hraunstraumi. Sú vinna hófst nokkru áður en fór að gjósa í Geldingadölum. Sérfræðingahópurinn hugaði m.a. að aðgerðum gegn hraunrennsli á Reykjanesskaga.

Eyjamenn gerðu fyrsta garðinn meðfram ströndinni til að verja innsiglinguna. Ármann segir að enn marki fyrir garðinum í hrauninu. Hraunkæling virkaði líka vel og var mest kælt þar sem hraunkanturinn lá utan í varnargarðinum. Fleiri görðum var mokað upp og héldu þeir á móti hrauninu um tíma.

„Slysið varð þegar gígur Eldfells hrundi. Þá opnaðist geil í átt að bænum sem hraun fór að renna um. Það var ekkert hægt að stoppa það,“ sagði Ármann.

Nýir Reykjaneseldar hafnir

„Nýir Reykjaneseldar eru byrjaðir. Nú er í gangi lítið og þægilegt eldgos. En þegar fer að gjósa úti í sprungusveimunum og nær innviðum og þorpunum er ekki um annað að ræða en að reyna að stjórna hraunflæðinu. Það er þess virði að reyna það,“ sagði Ármann. Nú hefur verið ýtt upp varnargörðum í Nafnlausa dal ofan við Nátthaga.

„Við vildum fá að setja upp alls konar varnargarða í Meradölum með mismunandi hornum og fláum og gera tilraunir með að stýra hraunrennslinu. En við fengum ekki leyfi til þess hjá yfirvöldum. Hins vegar fékkst leyfi til að gera þessa þvergarða í Nafnlausa dal,“ sagði Ármann. „Þegar við erum með tiltölulega meðfærilegt eldgos eins og þetta er grátlegt að tækifærið sé ekki notað til að prófa mismunandi gerðir af varnargörðum. Ef fer að gjósa nálægt einhverju sem skiptir máli að verja þá er hætt við að gerð verði mistök í ringulreiðinni sem skapast. Í staðinn hefðum við getað prófað þetta allt saman í næði og vitað nákvæmlega hvernig garð við viljum setja á hverjum stað. Þá geta menn gengið fumlaust til verka. Ef gosið heldur áfram þá fer það í austari Meradalinn og þá gefst tækifæri til að gera svona tilraun.“

Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjallafræði við HÍ, sagðist vilja setja garð þvert yfir Meradal til að sjá hvað hann heldur lengi á móti hrauninu. Mikilvægt sé að vita það ef fer að gjósa þar sem eina ráðið er að stoppa hraunið.

„Við vonum að hraunið haldi áfram að renna niður í Meradali. Hraunpytturinn þar sem hraunið kemur frá gígnum í gegnum skarðið inn í Nafnlausa dal rís nú hátt yfir landið. Pytturinn gæti verið 30-35 metra djúpur. Hraun gusast úr honum inn dalinn og eins niður í Meradali,“ sagði Ármann.

Þorvaldur benti á að hraunið í pyttinum þyrfti að fara yfir hraunið úr Nafnlausa dal til að ná fram á brún Nátthaga. Haldi eldgosið áfram verði endirinn líklega sá að dalurinn fyllist og hraun renni í Nátthaga. „Þetta tekur allt sinn tíma og það verða engar stórkostlegar hamfarir,“ sagði Þorvaldur.

Ármann segir að það sé allt í lagi að byrja að hemja hraunið þarna á brúninni. Framkvæmdin sé tiltölulega lítil. Dragi úr gosinu eða hraunrennslið beinist alfarið í Meradali fari það ekkert lengra þarna. Ef það hins vegar skríður yfir varnargarðana og niður í Nátthaga þá verði hægt að tefja fyrir hrauninu niðri í dalnum. „Þá höfum við líka meiri tíma og verðum reynslunni ríkari,“ sagði Þorvaldur.

Mjög merkilegt eldgos

Hann sagði að kvikuframleiðslan hefði verið nokkuð stöðug í þessu merkilega gosi.

„Við erum að horfa upp á eldgos sem hefur búið til allar tegundir af basalthraunum sem þekkjast á jörðinni. Bæði seig apalhraun, mjög þunnfljótandi helluhraun og allt þar á milli. Svo sjáum við alla þessa fjölbreytni í gosvirkninni. Á tímabili var stöðug kvikustrókavirkni, svo púlsavirkni og allt gerist þetta án þess að það verði veruleg breyting á framleiðslu hrauns. Það segir okkur að framleiðni er einn þáttur sem hefur áhrif á hvernig gos hagar sér en er greinilega ekki meginþátturinn. Það gengur gegn flestum kenningum í eldfjallafræði. Við eigum margt eftir ólært. Hitabúskapurinn í flutningsrásunum virðist alveg ráða því hvaða hraungerð myndast. Sé hitatapið mikið færðu apalhraun en sé það lítið færðu þunnfljótandi helluhraun.“

Vilja gera nýtt bílastæði og salerni fyrir gosgesti

Opnað hefur verið fyrir greiðslu bílastæðagjalds á bílastæði við upphaf gönguleiðarinnar við Suðurstrandarveg. Greitt er í gegnum Parka-smáforritið (Parka app) og kostar 1.000 krónur að leggja. Ekki er farið að fylgja því eftir að fólk borgi fyrir að leggja. Það er næsta skref, að sögn Sigurðar Gíslasonar, formanns Landeigendafélags Hrauns sf.

Stór hluti af gjaldinu fer í að byggja upp aðstöðu. Vilji er til að gera veg inn í Nátthagakrika, þar sem fremsti hluti gönguleiðanna liggur. Þar á að gera bílastæði, þjónustuhús og salernisaðstöðu fáist leyfi skipulagsyfirvalda.

Búið er að stika leið fyrir breytta bíla upp á Fagradalsfjall og í átt að gosinu. Sigurður sagði eftir að útfæra það nákvæmlega. Þær hugmyndir verða lagðar fyrir þar til bær yfirvöld, Grindavíkurbæ og Umhverfisstofnun, til samþykktar.

„Við viljum fá þetta í gegn sem fyrst,“ sagði Sigurður. „Hugmyndin er ekki að leggja veg heldur vegslóða sem sérbúnir bílar geta keyrt. Við höfum skilað frumdrögum til Grindavíkurbæjar og það er verið að útfæra þau. EFLA verkfræðistofa er að vinna þetta með okkur. Hugmyndin er að það verði aðgangsstýring með sérleyfisgjaldi. Um leið og þetta verður samþykkt getum við samið við einhverja sem gera út breytta ferðaþjónustubíla um sérleyfi.“

Sigurður segir að Landeigendafélag Hrauns haldi áfram að vinna að þessu verkefni eins og landið verði ekki selt. Ýmsir hafa lýst áhuga á að kaupa landið og gert tilboð sem landeigendum hafa ekki þótt nógu spennandi til þessa. „Ef kemur tilboð sem landeigendur taka getur nýr landeigandi haldið verkinu áfram,“ sagði Sigurður.