Nýr Hörður Ingi Gunnarsson er einn af nýliðunum í hópnum.
Nýr Hörður Ingi Gunnarsson er einn af nýliðunum í hópnum. — AFP
Arnar Þór Viðarsson, þjálfari karlalandsliðs Íslands í knattspyrnu, hefur valið 34 leikmenn fyrir vináttulandsleikina þrjá gegn Mexíkó, Færeyjum og Póllandi sem fram fara 30. maí, 4. júní og 8. júní.

Arnar Þór Viðarsson, þjálfari karlalandsliðs Íslands í knattspyrnu, hefur valið 34 leikmenn fyrir vináttulandsleikina þrjá gegn Mexíkó, Færeyjum og Póllandi sem fram fara 30. maí, 4. júní og 8. júní.

Ellefu nýliðar eru í hópnum, markverðirnir Elías Rafn Ólafsson frá Fredericia og Patrik Sigurður Gunnarsson frá Silkeborg, Brynjar Ingi Bjarnason úr KA, Hörður Ingi Gunnarsson úr FH, Ísak Óli Ólafsson úr Keflavík, Kolbeinn Þórðarson frá Lommel, Rúnar Þór Sigurgeirsson úr Keflavík, Valgeir Lunddal Friðriksson frá Häcken, Gísli Eyjólfsson úr Breiðabliki, Stefán Teitur Þórðarson frá Silkeborg og Þórir Jóhann Helgason frá FH.

Af þeim sem voru í landsliðshópnum í marsmánuði vantar Hannes Þór Halldórsson, Sverri Inga Ingason, Hörð Björgvin Magnússon, Guðlaug Victor Pálsson, Arnór Sigurðsson, Ara Frey Skúlason, Jóhann Berg Guðmundsson, Hólmbert Aron Friðjónsson og Hólmar Örn Eyjólfsson.

Gylfi Þór Sigurðsson og Alfreð Finnbogason voru ekki með í þeim leikjum og eru heldur ekki með í þessu verkefni.

Viðar Örn Kjartansson, Mikael Anderson, Jón Guðni Fjóluson, Aron Elís Þrándarson, Andri Fannar Baldursson og Guðmundur Þórarinsson koma inn í hópinn á ný, eftir mislanga fjarveru.

Af þessum 34 leikmönnum fara 24 til Texas til að spila gegn Mexíkó en hinir tíu koma inn í hópinn fyrir tvo seinni leikina. Nánar um þetta á mbl.is/sport/fotbolti og þar er hópurinn í heild sinni. vs@mbl.is