Gleði Mikil stemning hefur jafnan ríkt á unglingalandsmótum UMFÍ en mótið verður að óbreyttu haldið um verslunarmannahelgina á Selfossi.
Gleði Mikil stemning hefur jafnan ríkt á unglingalandsmótum UMFÍ en mótið verður að óbreyttu haldið um verslunarmannahelgina á Selfossi. — Morgunblaðið/Eggert
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Landsmót UMFÍ fyrir unglinga annars vegar og 50 ára og eldri hins vegar verða haldin á Selfossi og í Borgarnesi í ágúst. Mótshaldarar segjast vongóðir um fjölmenn mót og góða afþreyingu fyrir alla fjölskylduna.

Urður Egilsdóttir

urdur@mbl.is

Okkur sýnist að þetta verði gerlegt og við skynjum að fólk sé orðið ansi mótaþyrst,“ segir Ómar Bragi Stefánsson, framkvæmdastjóri móta UMFÍ en ákveðið hefur verið að halda unglingalandsmót á Selfossi um verslunarmannahelgina og landsmót UMFÍ fyrir 50 ára og eldri í lok ágúst.

„Þessi mót hafa fengið sérstaklega langan undirbúning,“ segir Ómar en öllum mótum og viðburðum UMFÍ var frestað í fyrra vegna kórónuveirunnar. „Þráðurinn var tekinn upp síðasta haust og við höfum bara verið vongóð síðan um gott mótshald í sumar,“ segir Ómar og bætir við að fylgst verði vel með sóttvarnareglum næstu mánuði og teknar ákvarðanir eftir þeim. „Við vinnum að sjálfsögðu með heilbrigðisyfirvöldum og gerum allt í samræmi við sóttvarnaaðgerðir sem mögulega verða í gildi.“

Verður með svipuðu sniði

Unglingalandsmótið sem er vímulaus íþrótta- og fjölskylduhátíð hefur verið haldið frá árinu 1992 og hafa þúsundir ungmenna og fjölskyldur þeirra tekið þátt á mótunum á hverju ári.

Í ár býður mótið upp á keppni í 24 íþróttagreinum fyrir alla þátttakendur á aldrinum 11-19 ára. Mótin eru yfirleitt fyrir 11-18 ára en þar sem mótinu var frestað í fyrra var ákveðið að leyfa þeim sem voru 18 ára þá að taka þátt nú.

Ómar segir mótið verða með svipuðu sniði og það hefur verið áður, „en auðvitað munu sóttvarnir setja mark sitt á mótshaldið“.

Á meðal íþróttagreina eru knattspyrna, körfubolti og frjálsar íþróttir en líka aðrar nýlegri eins og strandhandbolti og standblak. Líka er hægt að skrá sig í hlaupaskotfimi, bogfimi, borðtennis, golf og glímu, kökuskreytingar, rafíþróttir og margar fleiri. Fatlaðir geta eins og á fyrri mótum tekið þátt í fjölda greina. Öll kvöld mótsins verða svo í boði tónleikar fyrir gesti.

Ómar segir að búist sé við þúsundum mótsgesta á Selfossi um verslunarmannahelgina og er verið að útbúa risastórt tjaldsvæði við Suðurhóla í útjaðri bæjarins fyrir þátttakendur af öllu landinu. Svæðið er í göngufæri við mótssvæðið og ákveðnar götur verða lokaðar í tengslum við nokkra viðburði.

Keppni í pönnukökubakstri

Landsmót 50 ára og eldri verður haldið í Borgarnesi helgina 27.-29. ágúst en áður hefur mótið verið haldið í byrjun júní. Ómar segir mótshaldara viljandi hafa fært það aftar til þess að vera tryggari með samkomutakmarkanir.

Mótið hefur farið fram árlega víða um land síðan árið 2011 og er öllum opið sem verða 50 ára á þessu ári og öllum eldri. Í boði er keppni í fjölda greina. Þar á meðal eru boccía, ringó, fjallahlaup og pönnukökubakstur.

Mikil eftirvænting

Skráning fyrir bæði mótin opnast um mánuði fyrr og er ekki skilyrði að vera skráður í íþróttafélag.

„Við hlökkum verulega til og sjáum fram á skemmtilegt sumar,“ segir Ómar og bætir við að félagið hafi fundið fyrir mikilli eftirvæntingu, ekki síður hjá fullorðna fólkinu. „Við vitum að þó nokkuð af gistingu hefur þegar verið bókað í Borgarnesi.“

Ómar segir gríðarlega mikla og skemmtilega uppbyggingu vera í kringum mótin og þá sérstaklega á Selfossi í kringum íþróttasvæðið sem mun nýtast vel. „Það er komin mikil hreyfigleði í fólk á öllum aldri. Eins og þeir vita sem hafa komið á mótin okkar þá verður þetta svakalega skemmtilegur viðburður fyrir alla fjölskylduna,“ segir Ómar.