Elsku Vatnsberinn minn, það er alveg sama þó þú hafir áhyggjur af hinu eða þessu, það eina sem það færir þér er þreyta. Engar lausnir getur þú fundið þegar þú ert áhyggjufullur, því í þeirri orku felast engin svör.

Elsku Vatnsberinn minn, það er alveg sama þó þú hafir áhyggjur af hinu eða þessu, það eina sem það færir þér er þreyta. Engar lausnir getur þú fundið þegar þú ert áhyggjufullur, því í þeirri orku felast engin svör. Þeir sem eru fyrstir að kveikja eldana eru frumkvöðlar og í þér býr sá eldhugi. Þú þarft að klára allt sem þú hefur byrjað á, og reyndu að passa þig á því að byrja ekki á of mörgu, því það dregur líka úr mætti þínum. Þú þarft að vera spontant í þessum tíma sem þú ert að fara inn í og ekki undirbúa þig of mikið undir þau verkefni sem þér verða færð, heldur skaltu vita þegar þú stendur frammi fyrir því, þá færðu réttu orðin og rétta kraftinn.

Láttu alls ekki þá sem fara í taugarrnar á þér sjá hver líðan þín er og af öllu því sem þú hræðist eru svipbrigðin þín merkilegust, því lífið er bara bíómynd og þú ert að sjálfsögðu aðalleikarinn.

Ef þér finnst að þú sért að leita að hinni sönnu hamingju, þá er hún einfaldlega þannig að sá sem hugsar skemmtilegustu hugsanirnar verður hamingjusamur. Þú hefur alltaf verið gjafmildur, en ef þér finnst að þú sért hættur að gefa af þér, þá byrjar andi þinn að deyja. Allt er þetta tengt tilfinningum, sem þýðir að finna til, en þegar maður hættir að finna til nokkurs, er maður heldur ekki lifandi. Það getur enginn sært þig nema með þínu samþykki og þó þú hittir manneskju sem er boðberi illra tíðinda, að einhver hafi sagt þetta eða hitt um þig, þá er það ekki vinátta, heldur sá sem slúðrar. Og þetta er fullkomlega þinn hárrétti tími til að halda áfram eins bjartur og hlýr og þú ert og skoða þá sigra sem þú hefur persónulega unnið, óháð annarra vitleysu. Ástin getur verið svolítið á flögri, þú ert handviss eitt augnablik um að hún sé til staðar, og hið næsta að hún sé bara hindrun. Sönn ást býr í því að þú viljir gera meira fyrir manneskjuna í hjarta þínu eða sem þú þráir, en nokkurn tímann fyrir sjálfan þig. Haltu áfram með krafti, því í þér býr kóngur eða drottning.