Glaðhlakkalegir Guðni Ágústsson hampar hér laxinum stóra, 87 cm löngum, og nýtur aðstoðar Þorsteins Stefánssonar leiðsögumanns við Norðurá. Þetta var fyrsti flugulax Guðna sem var gestur við opnun Norðurár.
Glaðhlakkalegir Guðni Ágústsson hampar hér laxinum stóra, 87 cm löngum, og nýtur aðstoðar Þorsteins Stefánssonar leiðsögumanns við Norðurá. Þetta var fyrsti flugulax Guðna sem var gestur við opnun Norðurár. — Morgunblaðið/Einar Falur
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Stangveiði Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.

Stangveiði

Einar Falur Ingólfsson

efi@mbl.is

„Það kæmi mér á óvart ef Guðni verður ekki búinn að setja í lax fyrir klukkan níu,“ sagði Einar Sigfússon, staðarhaldari við Norðurá, við blaðamann um áttaleytið í gærmorgun þar sem hann gekk ásamt gesti sínum, Guðna Ágústssyni fyrrverandi ráðherra, niður að veiðistöðunum kunnu neðan við Laxfoss. Guðna hafði verið boðið að hefja veiðar á Brotinu við opnun árinnar og Einar hafði mikla trú á honum þótt Guðni hefði bætt við að hann hefði aldrei veitt lax á flugu. „Ég hef þó veitt á stöng, á maðk, og er næstmesti netaveiðimaður í heimi, á eftir Jesú Kristi sem veiddi í Genesaretvatni,“ sagði Guðni glaðhlakkalegur.

Þorsteinn Stefánsson, yfirleiðsögumaður við Norðurá, tók að sér að vaða út í ána með gestinum og segja honum til við kastið og hvar laxinn myndi liggja. Undir var hitstúpa, Haugur, með krók númer 14.

Aðstæður við Norðurá voru í gær eins og best verður á kosið; gott vatn og 13 stiga hiti. Talsvert er um liðið síðan fyrst sást til laxa í ánni og taldi Einar að þeir fyrstu hefðu þegar gengið upp fyrir Laxfoss. En Guðna gekk vel að kasta og þegar flugan nálgaðist brotið þá reis lax fyrst við henni. Þorsteinn leiðsögumaður gaf gestum á bakkanum merki um það, lét Guðna taka hálft skref áfram og kasta aftur – þegar flugan skar strenginn aðeins neðar en í fyrra kasti renndi laxinn sér á hana, Guðni reisti stöngina og tók að þreyta hann. Það tók sinn tíma, enda sýnilega um sterkan stórlax að ræða sem þumbaðist en stökk aldrei. Á meðan bárust þau boð að fyrsta laxi sumarsins í ánni hefði verið landað neðar við ána, við Stokkhylsbrotið; þar hefði 82 cm lax tekið flugu Ingvars Svendsens.

„Þetta er hin mesta dýrð“

Einar og Þorsteinn aðstoðuðu Guðna í glímunni við fyrsta flugulax hans og gekk vel að háfa hnausþykkan og kviðsíðan hæng sem mældur var 87 cm langur.

„Nú er ég eins og ljósmóðir,“ sagði Guðni kampakátur þegar Þorsteinn setti hænginn stóra í fangið á honum til að hægt væri að mynda þá saman, áður en laxinum var sleppt aftur út í strauminn. „Þetta var alveg dásamlegt – og fiskurinn var kominn á land fyrir klukkan níu, alveg eins og Einar spáði,“ bætti Guðni við þar sem hann stóð enn úti í ánni.

Í samtali þegar hann var kominn upp á bakkann hnykkti Guðni á þeirri hugsun sinni að hann hafi verið eins og ljósmóðir „að taka á móti dýrlegum einstaklingi sem maður hefur þráð að fá í fangið!

Þetta er hin íslenska náttúra, þetta er hin mesta dýrð,“ sagði hann svo og horfði á fallegt umhverfið við Laxfoss.

„Steingrímur Hermannsson sagði gjarnan: Ég fer með gesti mína út í veiðiárnar, ekki að hella þá fulla á Hótel Borg. Enda koma þeir aftur og aftur og elska Ísland á eftir. Þetta er auðlind sem við eigum og er ein sú dýrmætasta í heiminum,“ sagði hann um veiðiárnar.

„Ég hef veitt, bæði á stöng og verið þekktur netaveiðimaður í Hvítá. Fyrir tengdaföður minn, Hauk Gíslason á Stóru-Reykjum, veiddi ég fimmtán sumur í net, stundum 50 til 80 laxa á dag. Ég býst nú ekki við þannig afla í dag enda er það ekki það sem skiptir máli. Það er lífið, að vera við ána úti í náttúrunni, að njóta þess að sjá þennan frjálsa fisk. Þetta var stór fiskur, 87 cm – 14 pund! Ég svitnaði – mest af spennu, ekki af þreytu.

Þorsteini Stefánssyni þakka ég innilega fyrir aðstoðina.“

Fyrsti í Borgarfirði úr Skugga

Fyrsti laxinn sem kom á land í Borgarfirði í sumar kom ekki úr Norðurá heldur veiddi Nuno Alexandre Bentim Servo hann á veiðisvæðinu Skugga í fyrradag, þar sem Grímsá sameinast Hvítá. Var það smálax, 64 cm, sem Nuno sagði í samtali við Sporðaköst á Mbl.is að hefði verið „mjög þykkur og flottur. Ég fékk fyrst smá tog og þá beið ég nokkra stund og kastaði aftur og þá negldi hann litla kvarttommu Snældu.“ Nuno og félagar sáu fleiri laxa í Skugga en þeir tóku ekki.

„Það er saga á bak við þennan fisk,“ bætti hann við. „Ég átti kött sem hét Snælda og hann dó í vetur. Ég ákvað í minningu hans að veiða bara á Snældu í þessum veiðitúr og það reyndist svona líka vel.“

Einar hættir með Norðurá

Það spurðist við Norðurá í gærmorgun að breytingar væru í farvatninu hvað varðar umsýslu árinnar en Einar Sigfússon, sem hefur annast sölu leyfa og verið staðarhaldari við ána frá 2013, hefur ákveðið að hætta eftir sumarið.

„Það var aðalfundur hjá okkur í veiðifélaginu í gær og þá þar þetta kynnt, að Einar hefði sagt samningnum upp og okkar samstarfi lýkur í haust,“ sagði Guðrún Sigfúsdóttir frá Glitstöðum, formaður veiðifélagsins. „Samþykkt var á fundinum að leita eftir samstarfi við aðila að koma að rekstri árinnar með okkur á svipuðum nótum og Einar hefur verið.“

Guðrún bætti við að landeigendur hefðu verið ánægðir með fyrirkomulagið við ána síðustu ár og samstarfið við Einar. „Það hefur verið mikil fagmennska í öllum hans störfum hér,“ sagði hún.