„Það er alltaf eitthvað í gangi hjá okkur.
„Það er alltaf eitthvað í gangi hjá okkur. Því miður þurfum við alltaf að vera að benda á þessa hluti sem við erum ekki sátt við en við erum sem sagt núna að vekja athygli á að það er ekki bara einn heimsfaraldur í gangi,“ segir Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women, í viðtali við morgunþáttinn Ísland vaknar. Með fleiri en einum heimsfaraldri á Stella við „skuggafaraldurinn“ svokallaða, heimsfaraldur í skugga annars, sem er gríðarleg aukning tilkynninga um heimilisofbeldi í kjölfar Covid. Viðtalið við Stellu má nálgast í heild sinni á K100.is.